Boðar átak gegn svikafyrirtækjum 7. september 2007 15:59 MYND/GVA
Félagsmálaráðneytið hefur óskað eftir því við ASÍ að sambandið komi að eftirlitsátaki og hertum aðgerðum Vinnumálastofnunar vegna fyrirtækja sem ekki hafa skráð erlenda starfsmenn hér á landi og upplýst um réttindi þeirra. Forsvarsmenn AFLs Starfsgreinafélags undirbúa aðgerðir vegna seinagangs stjórnvalda í málinu. Fram kom í fréttum í gær að Vinnumálastofnun hefði hætt við að stöðva vinnu hjá tveimur undirverktökum Arnarfells við Hraunaveitu Kárahnjúkavirkjunar vegna óskráðra starfsmanna eftir að gögn voru lögð fram í málinu. Þessu mótmælti AFL Starfsgreinasamband harkalega og sagðist ekki treysta Vinnumálastofnun til þess að verja rétt launafólks í landinu. Í svipaðan streng tók Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, í pistli á heimasíðu sambandsins. Fólk búið að fá nóg Sverrir Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs, sagði í samtali við Vísi fyrr í dag að áratugir væru síðan verkalýðsfélögin hefðu gripið til aðgerða sem væru utan ramma laganna en nú nú væri mælirinn fullur. „Það er kominn tími til aðgerða. Fólk er búið að nóg af undanlátssemi Vinnumálastofnunar. Innan byggingariðnaðarins er verið að ráðast að lífskjörum fólks. Okkar félagsmönnum er sagt að ef þeir sætti sig ekki við tiltekin laun geti fyrirtækin vel ráðið erlenda verkamenn á kjörum undir samningum," segir Sverrir. Hann segist hafa farið ásamt formanni sambandsins um Austurland og alls staðar hvetji menn félagið til þess að grípa til aðgerða. Sverrir vildi þó ekki gefa upp til hvers konar aðgerða yrði gripið eða hvenær. AFL benti á í yfirlýsingu í gær að fresturinn sem félögin sem um ræddi væri veittur á grundvelli launaseðla sem gefnir eru út af starfsmannaleigunni Nordic Construction line SIA. Hún væri ekki með skráða starfsmenn samkvæmt vef Vinnumálastofnunar. Sverrir segir Vinnumálastofnun handónýta og ekki verði leitað frekar til hennar. AFL vonist eftir yfirlýsingu frá félagsmálaráðherra í málinu. Ekki annað liðið en að fyrirtæki fylgi lögum Tilkynning barst frá félagsmálaráðuneytinu í eftirmiðdaginn þar sem fram kemur að efnt verði til eftirlitsátaks í samstarfi við ASÍ og Vinnumálastofnun vegna rökstudds gruns um að fjöldi fyrirtækja hafi rangt við. Þar segir einnig að samhliða vinnu starfshóps á vegum ráðuneytisins í málinu hafi ráðherra mælst til þess að Vinnumálastofnun hefji þegar vinnu við afmörkuð verkefni sem lúta að eftirlitinu, að skýr skilaboð verði gefin út um að ekki verði annað liðið en að fyrirtæki, innlend sem erlend, virði íslensk lög. Viðurlögum verði beitt með markvissum og samræmdum hætti eftir því sem ástæða sé til. Tryggja eigi að erlendir starfsmenn búi við sambærileg kjör og aðbúnað og íslenskir starfsmenn og að ekki sé brotinn á þeim réttur samkvæmt gildandi lögum, reglum og kjarasamningum hér á landi. Félagsmálaráðherra mun funda með fulltrúum ASÍ og Vinnumálastofnunar um málið.
Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjá meira