Ástand olíustöðvarinnar í Hvalfirði óljóst 7. september 2007 12:37
Olíudreifing hefur áhuga á olíubirgðastöðinni í Hvalfirði en fyrirtækið hefur ekki lagt fram tilboð. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir að enn sé mörgum spurningum ósvarað hvað varðar ástand stöðvarinnar. Sögursagnir eru um að tankarnir hafi verið fylltir af sjó. „Við skoðuðum aðstæður þarna," segir Hörður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Olíudreifingar en fyrirtækið annast dreifingu og birgðahald fyrir N1 og Olís. „Það hefur ekkert tilboð verið lagt fram en frestur til að skila þeim rennur ekki út fyrr en 10. október." Hörður segir að ýmislegt þurfi að koma í ljós áður en tekin verði ákvörðun um að gera tilboð í stöðina. „Við höfum enn ekki getað skoðað inn í tankana. Þeir hafa verið lokaðir svo lengi að það er súrefnisskortur í þeim. Það er því lífshættulegt að fara niður í þá fyrr en súrefni hefur verið dælt í þá." Hörður segir að einnig séu ýmsar sögusagnir um ástand tankanna sem þarf að fá á hreint. „Við heyrðum af því að sjó hafi verið dælt í tankana eftir að þeir voru gerðir upp. Ef það reynist rétt breytist dæmið nokkuð," segir hann. Þá bendir Hörður á að Umhverfisstofnun eigi eftir að gefa leyfi fyrir rekstri olíubirgðastöðvar á svæðinu. Aðspurður hvort stöðin í Hvalfirði gæti á einhvern hátt komið í stað olíubirgðastöðvar í Örfirirsey segir Hörður ekki telja það. Hann segir kostnaðaraukann við að flytja eldsneyti fyrir höfuðborgarsvæðið um svo langan veg of mikinn til þess að það gæti verið raunhæfur kostur. „Við höfum ekki áhuga á því að draga saman þar, en við gætum þurft þess seinna meir," segir Hörður en staðsetning olíubirgðastöðvar í Örfirirsey hefur verið gagnrýnd af mörgum. Hörður segir stöðina í Hvalfirði hins vegar henta mjög vel fyrir geymslu á eldsneyti fyrir aðra landshluta, reynist hún í góðu ástandi. „Þetta fellur vel að okkar starfsemi en við erum með birgðastöð í næsta nágrenni." Hann segir tankana fjóra í stöðinni hins vegar vera heldur stóra til þess að þeir henti vel. „Þarna er um að ræða fjóra mjög stóra tanka en við erum með 13 tegundir af eldsneyti. Það hefði því verið heppilegra hefðu tankarnir verið fleiri og minni. Við erum bara með einn jafnstóran tank í notkun í dag, á Seyðisfirði, og hann erum við að fara að taka úr notkun," segir Hörður.
Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjá meira