Innlent

Brotist inn í bifreiðar á söluplani Brimborgar

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um innbrot inn í tvær bifreiðar á söluplani Brimborgar klukkan hálf fjögur í dag. Búið var að brjóta hliðarrúður bifreiðanna og gerð tilraun til að nema geislaspilara á brott. Framkvæmdastjóri Brimborgar segir um minniháttar tjón að ræða.

„Þetta eru tveir notaðir bílar í eigu Brimborgar sem eru á sölu," sagði Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar, í samtali við Vísi. „Tjónið er afar lítið og svona kemur sem betur fer sjaldan fyrir."

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu voru geislaspilarar í bílunum losaðir en ekki teknir. Líklegt þykir að innbrotið hafi átt sér stað í nótt en að sögn lögreglu er málið enn í rannsókn og hefur enginn verið yfirheyrður vegna þess.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×