Benedikt hálfnaður með Drangeyjarsundið 5. september 2007 15:03 Benedikt er meðal fremstu sjósundsmanna landsins en hann hefur meðal annars þreytt Vestfjarðasund. MYND/GAK
Sjósundkappinn Benedikt S. Lafleur er nú tæplega hálfnaður í Drangeyjarsundi sínu og fetar þar í kjölfar Grettis Ásmundarsonar fornkappa. Viggó Jónsson, fréttaritari Stöðvar 2 á Sauðárkróki, fylgir Benedikt eftir og í samtali við Vísi sagði hann að sundið gengi vel. „Það hefur verið vestankaldi á okkur en sjólaust og hann lætur það ekki á sig fá,“ sagði Viggó. Benedikt stakk sér til sunds frá Drangey laust eftir klukkan eitt í dag og er reiknað með að hann komi á land á Reykjum á Reykjaströnd milli klukkan fjögur og fimm, en þetta er um sjö kílómetra vegalengd. Til stóð að Benedikt synti Drangeyjarsund í fyrradag en þá varð hann frá að hverfa vegna vaxandi vinds. Þess má geta að aðalfylgdarmaður Benedikts í dag er sjálfur Drangeyjarjarlinn, Jón frá Fagranesi, en hann hefur mikla reynslu af fylgd Drangeyjarfara og sjósundkappa sem synt hafa frá og í eyjuna. Aðeins nokkrir kappar hafa synt þetta sund sem einnig hefur verið kennt við Gretti Ásmundarson. Síðastur til að synda milli Drangeyjar og lands var Kristinn Magnússon árið 2004. Þá var hann að fara í annað sinn en í fyrra skiptið, árið 1998, synti hann vegalengdina á aðeins tveimur tímum og tíu mínútum.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Sjá meira