Innlent

Hafnarvörður ákærður fyrir smygl

Maðurinn hefði betur skroppið í Ríkið.
Maðurinn hefði betur skroppið í Ríkið. Mynd/ GVA

Hafnarvörður á Norðurlandi hefur verið ákærður fyrir að að smygla til landsins 32 lítrum af áfengi. Hann keypti áfengið af skipverja á flutningaskipi sem lá við höfn. Að beiðni þriðja aðila tók maðurinn svo á móti áfenginu á hafnarsvæðinu og flutti í áhaldahús.

Maðurinn er ákærður fyrir brot í opinberu starfi og fyrir tollalagabrot. Að sögn Sigríðar Elsu Kjartansdóttur saksóknara mun hann líklegast fá sektarrefsingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×