Tekist á um hver eigi efsta hluta Esjunnar Björn Gíslason skrifar 5. september 2007 14:23
Fyrirtaka var í þjóðlendumáli sem íslenska ríkið hefur höfðað á hendur eigendum jarða í kringum Esjuna. Vill íslenska ríkið meðal annars að efsti hluti Esjunnar, eins og það er orðað, verði úrskurðaður þjóðlenda. Ríkið höfðar mál á hendur alls 72 aðilum en meðal þeirra eru Reykjavíkurborg og fyrirtækið Stjörnuegg auk fjölda manna sem eiga lönd allt í kringum Esjuna, allt frá svæðinu innan Mógilsár og inn í Kjós. Forsaga málsins er sú að óbyggðanefnd, sem á að ákvarða hvað séu þjóðlendur og hvað ekki, tók fyrir þjóðlendukröfur ríkisins á Kjalarnesi og í Kjós. Var nefndinni falið að ákvarða hvaða land teldist til þjóðlendna og hvað væri eignarland. Af hálfu fjármálaráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins var annars vegar gerð krafa um að hálendið upp af jörðunum Ingunnarstöðum og Þrándarstöðum í Mosfellsbæ yrði viðurkennt sem þjóðlenda og afmarkað á tiltekinn hátt. Hins vegar gerði ríkið kröfu um að efsti hluti Esjunnar og sá hluti Blikdals sem ekki er hluti af neinni jörð yrði viðurkenndur sem þjóðlendur. Ágreiningurinn um þjóðlendumörkin snerist fyrst og fremst um það að mati óbyggðanefndar hvernig túlka bæri hugtakið fjallsbrún sem oft væri notað í landamerkjabréfum jarða í kringum Esju. Af hálfu íslenska ríkisins var á því byggt að fjallsbrún væri þar sem halli breytist mest á tilteknum stað, t.d. í klettabrún. Af hálfu jarðeigenda var hins vegar byggt á því að fjallsbrún væri þar sem fjall er hæst eða þar sem vötnum hallr. Komst óbyggðanefnd að því eftir að hafa skoðað gamlar heimildir og staðhætti á Esjusvæðinu að eðlilegt væri að leggja til grundvallar að hugtakið fjallsbrún vísaði til þeirra hluta Esjunnar sem hæstir væru og vötnum hallar frá. Hafnaði því óbyggðanefnd öllum kröfum íslenska ríksins í málinu. Því unir íslenska ríkið ekki og hefur höfðað mál fyrir dómstólum til þess að fá úrskurði óbyggðanefndar hnekkt.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Sjá meira