Íslendingar í nálægð við raðmorðingja í New York 5. september 2007 15:00 Carter hótelið er á Times Square í New York.
Hrottalegt morð var framið á Carter hótelinu á Times Square í New York síðastliðinn fimmtudag. Margir Íslendingar sem lagt hafa leið sína um New York borg hafa dvalið á hótelinu. Davíð Jónsson háskólanemi var staddur á hótelinu daginn sem morðið var framið. „Á fimmtudag og föstudag var allt fullt af lögreglumönnum hérna á hótelinu. Á sama tíma voru fulltrúar allra helstu fréttastöðva fyrir utan," segir Davíð. „Í fyrstu vissum við ekki hvað hafði gerst. Starfsmenn hótelsins vildu ekki tjá sig um hvað væri á seyði. Þeir sögðust ekki vita neitt. En fljótlega fór þó að kvisast út meðal hótelgesta að einhver hefði dáið þegar nokkrir gestanna sáu lík borið út," bætir Davíð við. Hann segist síðan hafa fengið það staðfest frá fréttamönnum að einhver hefði verið myrtur. Davíð segist vita til þess að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem morð er framið á hótelinu. Fyrir nokkrum árum hafi starfsmaður hótelsins verið kærður fyrir að myrða hótelgest. Davíð kýs að kalla það „Morðhótelið". Lögreglan í New York vaktaði svæðið á fimmtudeginum.Á vef New York Daily News kemur fram að einn maður hafi verið ákærður fyrir morðið. Hann sé 35 ára gamall og heiti Clarence Dean. Hann hafi sennilegast hitt hina myrtu, sem var ung kona, á einkamálasíðu. Svo hafi hann átt fund með henni á Carter hótelinu þar sem hann hafi nauðgað henni og svo myrt. New York Daily News greinir einnig frá því að Dean hafi verið ákærður fyrir að nauðga og myrða háskólanema sem hann kynntist á Netstefnumóti í janúar síðastliðinn. Þá sé hann þekktur barnaníðingur og hafi myrt 12 ára gamla stelpu á miðjum 10. áratugnum. Davíð ber Carter hótelinu ekki vel söguna og segir að það sé jafn slæmt og samnefndur fyrrverandi forseti Bandaríkjanna.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Sjá meira