Sölumenn SS mættu ferskir til vinnu í morgun 5. september 2007 11:37 Sölumennirnir hafa sennilega pulsað sig upp.
Útisölumenn hjá Sláturfélagi Suðurlands, sem flestir tilkynntu sig veika í gær, mættu hressir til vinnu í morgun. Eins og greint var frá í gær herma heimildir Vísis að sölumennirnir hafi ekki verið veikir heldur hafi þeir verið að mótmæla skipulagsbreytingu hjá fyrirtækinu.Forstjóri SS segir engin eftirmál verða að atvikinu, málin hafi verið rædd í morgun. Sölumennirnir, tíu til tólf talsins, munu hafa verið ósáttir með að vegna skipulagsbreytinga hafi starfi Einars Viðars Gunnlaugssonar, sölustjóra, verið slátrað. Þeir hafi viljað láta óánægju sína í ljós með þessum aðgerðum í gær. Steinþór Skúlason, forstjóri SS, sagði í samtali við Vísi í gær að hann vildi ekki trúa því að fólk segði ósatt um heilsufar sitt. Hann sagðist ekki hafa orðið var við óánægju starfsmanna vegna skipulagsbreytinganna og hann benti á að ákvörðunin um að leggja starf Einars niður hefði ekkert haft með störf hans hjá SS að gera. Í samtali nú í dag segir Steinþór hins vegar að allir hafi mætt til vinnu sinnar í morgun. „Málin voru rædd í morgun og ég geri ekki ráð fyrir því að það verði eftirmál af þessu," segir hann.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Fleiri fréttir „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun Sjá meira