Heildstætt frumvarp um verkefnaflutning í haust 4. september 2007 16:32 MYND/Valgarður
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin muni í haust flytja heildstætt frumvarp um breytingar á sérlögum vegna verkefnatilfærslna á milli ráðuneyta í samræmi við þær hugmyndir sem kynntar voru þegar ríkisstjórnin var mynduð. Þetta kemur fram í svarbréfi hans til Guðna Ágústssonar, formanns Framsóknarflokksins.Guðni sendi forsætisráðherra bréf skömmu fyrir síðustu mánaðamót og spurði hann út í sögusagnir sem væru á kreiki um að verkefni yrðu færð innan Stjórnaráðsins sem ekki hefðu verið staðfest á sumarþingi en lægju í loftinu. Sagði hann það ekki einkamál Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins að ganga til breytinga á verkefnum Stjórnarráðsins og sagði það lýðræðislegan rétt Alþingis, stofnana og hagsmunaaðila í þjóðfélaginu að fá upplýsingar um fyrirhugaðar breytingar.Í svarbréfi Geirs kemur fram að þegar ríkisstjórnin hafi verið mynduð hafi verið greint í megindráttum frá breytingum á verkaskiptingu ráðherra. Í kjölfarið hafi svo verið lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um Stjórnarráð Íslands þar sem fram hefði komið að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti yrðu sameinuð, Hagstofan lögð niður sem ráðuneyti og nöfnum heilbrigðis- og trygginamálaráðuneytis og félagsmálaráðuneytis breytt í samræmi við verkefnaflutning. Þessar breytingar hafi verið samþykktar á sumarþingi og þær taki gildi um næstu áramót. Jafnframt hafi verið heimilað að sameina ráðuneyti með úrskurði forseta og sé sú heimild til þess fallin að auðvelda enn frekari hagræðingu innan Stjórnarráðsins.Þá segir enn fremur í bréfi Geirs að ríkisstjórnin hafi notað sumarið til þess að útfæra nánar endurskoðaða verkaskiptingu ráðherra. Kveðið sé á um þá verkaskiptingu í Reglugerð um stjórnarráð Íslands og forsætisráðherra muni undirbúa breytingar á henni fyrir áramót. Þá kalli verkefnatilfærslan á breytingar á sérlögum og verði flutt heildstætt frumvarp þar um í haust. Þá þurfi enn fremur að leggja fram ný frumvörp, til að mynda um Hagstofuna og málefni Keflavíkurflugvallar. Þingmönnum muni að sjálfsögðu gefast eðlileg tækifæri til þess að fjalla um áform ríkisstjórnarinnar í þessu efni.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira