Sölumenn SS í samúðarverkfalli 4. september 2007 16:03 Bróðurpartur útisölumanna SS liggur nú veikur heima.
Tíu til tólf sölumenn hjá Sláturfélagi Suðurlands mættu ekki til vinnu í morgun og báru við veikindum. Heimildir Vísis herma að sölumennirnir séu ósáttir við að sölustjóra þeirra hafi verið sagt upp. Forstjóri SS segir þetta valda ákveðinni truflun hjá fyrirtækinu en segist ekki vilja ætla mönnum það að þeir geri sér upp veikindi. „Ég vil ekki ætla fólki að það segi ósatt," segir Steinþór Skúlason forstjóri SS aðspurður hvort eitthvað annað en tilviljun valdi því að nær allir útisölumenn fyrirtækisins liggi nú veikir heima. Steinþór staðfestir að í kjölfar skipulagsbreytinga hafi Einari Viðari Gunnlaugssyni, sölustjóra framleiðsluvöru verið sagt upp. „Breytingarnar ollu því að staða hans var lögð niður, en það hafði ekkert með störf hans hjá Sláturfélaginu að gera," segir Steinþór. Hann bætir því við að hjá SS séu reglulega gerðar breytingar í starfsmannamálum eins og hjá öðrum fyrirtækjum. Steinþór segist hins vegar ekki hafa orðið var við óánægju starfsmanna og segist hann ekki hafa trú á því að breytingarnar sem gerðar voru stefni heilsufari fólks í hættu, eins og hann orðar það. Hann segir það enda grafalvarlegt mál reynist um skipulagðar aðgerðir að ræða, þá væri um að ræða ólöglegt verkfall. „Við skulum bara vona að Eyjólfur hressist og að þessir haustkvillar gangi fljótt yfir," segir Steinþór að lokum.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Sjá meira