Skólabækurnar misdýrar eftir verslunum 16. ágúst 2007 20:35 MYND/GVA
Í verðkönnum sem verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi í sjö bókaverslunum á höfuðborgarsvæðinu í dag kom í ljós að mikill verðmunur er á milli verslana þegar kemur að námsbókum. Rúmlega 80 prósenta munur var á hæsta og lægsta verði á nýjum bókum og munurinn var enn meiri þegar kemur að notuðum bókum, eða 111,1 prósent. Á heimasíðu ASÍ kemur fram að kannað hafi verið verð á 29 algengum nýjum náms- og orðabókum og 26 notuðum kennslubókum í framhaldsskólum. Griffill í Skeifunni reyndist oftast bjóða lægsta verðið á nýjum bókum eða á 13 titlum, en Office 1 var með lægsta verð á 12 nýjum titlum. Griffill kom einnig best út þegar verð á notuðum bókum var kannað eða í 15 tilfellum af 26. Það var bókabúð Máls og menningar sem oftast var með hæsta verðið nýjum bókum og Penninn Eymundsson í Kringlunni var oftast með dýrustu notuðu bækurnar. Í könnuninni kemur einnig fram mikill munur á verði notaðra og nýrra bóka. Á heimasíðu ASÍ segir að ekki sé óalgengt að nýjar bækur séu 50 til 70 prósent dýrari en þær notuðu. Þó er tekið fram að ekki var lagt mat á gæði þeirra bóka sem seldar eru notaðar. Verðlagseftirlitið beinir því til námsmanna að hafa það hugfast að verð á algengum bókatitlum breytist oft ört hjá verslunum við upphaf skólaársins auk þess sem úrval notaðra bóka sé mjög misjafnt eftir verslunum. Kannað var verð í eftirtöldum verslunum: Máli og menningu Laugavegi, Skólavörubúðinni Smiðjuvegi, Bóksölu stúdenta Hringbraut, Pennanum-Eymundsson Kringlunni, Office 1 Skeifunni, Griffli Skeifunni og Bókabúðinni Iðnú Brautarholti. Í öllum verslunum voru seldar nýjar bækur en notaðar bækur voru ekki seldar í Bóksölu stúdenta og Iðnú. Þá tekur ASÍ fram að verslunin Iða í Lækjargötu heimilaði ekki að verð í versluninni væri kannað.
Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Bein útsending: Kristrún ávarpar þingið óvænt Innlent Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Innlent Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Erlent Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Hlýnar um helgina Veður Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Innlent Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kristrún ávarpar þingið óvænt Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Borgarbúar frekar hlynntir kílómetragjaldi en landsbyggðin Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Sjá meira