Fjögurra manna fjölskylda borgar 10 þúsund Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. ágúst 2007 16:00 Lárus Welding og Vilhjálmur Þórmundur Vilhjálmsson kynna Reykjavíkurmaraþonið Mynd/ Anton Brink
Það kostar fjögurra manna fjölskyldu rúmar 10 þúsund krónur að taka þátt í 10 kílómetra skokki í Reykjavíkurmaraþoninu sem fram fer á laugardaginn. Þátttaka í heilu maraþoni kostar 4500 krónur. Glitnir niðurgreiðir ekki kostnað þátttakenda en greiðir fyrir markaðssetningu hlaupsins, að sögn Svövu Oddnýjar Ásgeirsdóttur, starfsmanns Reykjavíkurmaraþons. Svava Oddný segir að þátttakendur fái heilmikið fyrir þátttökugjaldið. Meðal annars góðan bol og höfuðbuff. Þá sé öllum boðið í pastaveislu og allir fái verðlaunagrip og vatn. Hún bendir jafnframt á að það kosti sitt að halda úti þeirri öryggisgæslu og sjúkragæslu sem nauðsynleg sé vegna maraþonsins. Um þrjú hundruð manns starfa við hlaupið að sögn Svövu. Liðlega 5.000 hlauparar höfðu skráð sig í hlaupið í gærkvöld. Það eru um þúsund fleiri en á sama tíma í fyrra. Af þessum hópi eru 830 erlendir hlauparar, nokkru fleiri en 2006. Svava segir að öll þátttökumet verði slegin þetta árið. Á sjötta hundrað manns taki þátt í 42 kílómetra hlaupinu en sá fjöldi náði ekki upp í 500 í fyrra. Einnig sé metþátttaka í öðrum vegalengdum. Svava hvetur þátttakendur til að skrá sig sem fyrst en skráningu á Netinu lýkur klukkan átta á morgun og þá hækkar þátttökugjald. Svava segir að mikil stemning sé fyrir hlaupinu á laugardaginn. Von sé á þekktum hlaupurum erlendis frá, þar á meðal fyrrum ólympíumeisturum. Þá ætli ýmsir hópar að taka þátt í mótinu og nefnir Svava sem dæmi að gjörgæsludeildir á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi hafi ákveðið að skora á hvor aðra í hlaupinu. Einnig hafi starfsfólk ráðuneytana ákveðið að fjölmenna. Þetta er í 24. skipti sem Reykjavíkurmaraþon er haldið og segir Svava að hlaupið verði sífellt vinsælla.
Mest lesið Fimm ríki fordæma ísraelsk stjórnvöld Erlent Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Erlent Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Gestum komið fyrir á öðru hóteli Innlent Fleiri fréttir Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Sjá meira