Kringlan fagnar 20 ára afmæli í dag 13. ágúst 2007 19:18
Kringlan fagnar 20 ára í afmæli í dag. Á þessum tuttugu árum hafa hartnær hundrað milljónir gesta komið í þessa vinsælu verslunarmiðstöð. Sérhver Íslendingur hefur eytt nærri þrjú hundruð klukkustundum í Kringlunni frá því hún var opnuð. Á þessum degi fyrir tveimur áratugum klippti Pálmi Jónsson kenndur við Hagkaup á borða og bauð Íslendingum að versla í fyrstu íslensku verslunarmiðstöðinni sem gerð var að erlendri fyrirmynd. Pálmi Jónsson var aðalhvatamaðurinn að byggingu Kringlunnar. Hápunkturinn á afmæli Kringlunnar verður líklega á næsta laugardag en þá mun Ingibjörg Pálmadóttir, dóttir frumkvöðulsins, afhjúpa brjóstmynd af föður sínum. Brjóstmyndin er gjöf Ingibjargar á þessum tímamótum. Fjöldi heimsókna í þessa vinsælu verslunarmiðstöð er rösklega 98 milljónir á þessum 20 árum og lætur það nærri að hver einasti núlifandi Íslendingur hafi komið í Kringluna 327 sinnum frá því hún var fyrst opnuð. Hver einstaklingur hefur varið þar hartnær þrjú hundruð klukkustundum. Allir þeir Íslendingar sem eru nákvæmlega jafnaldrar Kringlunnar fá gjafir frá verslunarmiðstöðinni við þessi tímamót. Kringlan hefur stækkað og vaxið eins og aðrir Íslendingar og er hún nú 52 þúsund fermetrar ef allt er talið og stækkaði mest við sameininguna við Borgarkringluna.
Mest lesið „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Innlent Engin byssa reyndist vera í bílnum Innlent Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Innlent „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Innlent Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Erlent Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Innlent Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Erlent Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Erlent Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar Innlent „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Innlent Fleiri fréttir Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Stytta opnunartíma Seltjarnarneslaugar: „Er þetta það sem við viljum spara í?“ Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Komu ferðamönnum í sjálfsheldu á Búlandstindi til aðstoðar Fylla í skörð reynslubolta Þurfti rannsóknarvinnu til að finna upplýsingar um bílastæðarukkun „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Bráðabirgðaheimild veitt fyrir Hvammsvirkjun Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Bílastæðamál, POTS, ókyrrð og íslenski hesturinn Engin byssa reyndist vera í bílnum Strætisvagnar rákust saman við Borgartún Hinn látni bandarískur ferðamaður á sextugsaldri Svara til saka eftir tvær vikur Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Virkjanir í Skagafirði úr vernd í bið en Urriðafoss í nýtingu Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Missir mikilvægrar meðferðar, óánægja í Ísrael og sundkappinn sem tefst Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Sjá meira