Innlent

Bæjarstjóri býður fram sáttahönd

Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, segist hafa ákveðið að takmarka aðgang ungmenna á aldrinum 18-23 ára að tjaldstæðum bæjarins um verslunarmannahelgina af illri nauðsyn. Hún hvetur til sátta í málinu og aðstandandi undirskriftasöfnunar gegn meirihluta bæjarstjórnar segist reiðubúinn að ræða við bæjarstjóra.

Eins og fram hefur komið í fréttum hafa staðið deilur um þá ákvörðun bæjaryfirvalda á Akureyri að meina ungmennum á aldrinum 18-23 ára að tjalda á tjaldstæðum bæjarins um verslunarmannahelgina. Í yfirlýsingu sem Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri hefur sent frá sér segir hún að þetta hafi því miður verið eina færa leiðin til þess að koma böndum á það ástand sem ríkt hafi í bænum um verslunarmannahelgina undanfarin ár.

Sigrún segir enn fremur að mun fleiri þættir en aldurstakmark á tjaldsvæðum hafi dregið úr aðsókn að hátíðinni Einni með öllu í ár, þar á meðal veðrið sem hafi verið verst á Norðurlandi þessa helgi. Hvetur Sigrún bæjarbúa til að slíðra sverin og nota næsta árið til að ákveða hvernig standa beri að fjölskyldumhátíðum í bænum til framtíðar.

Birgir Torfason, veitingamaður á Akureyri og einn af aðstandendum Einnar með öllu, hefur undanfarna daga staðið fyrir undirskriftasöfnun þar sem skorað er á meirihluta bæjarstjórnar að segja af sér. Hann sagði í samtali við fréttastofu í morgun að safnast hefðu á bilinu 500-600 undirskriftir í bænum og á Netinu á síðunni akureyri.blog.is.

Hann reiknaði með að safna undirskriftum áfram í dag og afhenda þær líklega eftir helgi. Hann sagði að bæjaryfirvöld hefðu staðið illa að málinu og að hátíðin hefði ekki verið haldin ef bæjaryfirvöld hefðu tilkynnt fyrr í sumar að til stæði að takmarka aðgang ungmenna að tjaldstæðunum. Aðspurður um sáttaboð Sigrúnar sagði Birgir að hann væri reiðubúinn að setjast niður og ræða framtíðina við hana ef hún léti í sér heyra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×