Ekki kemur til fjöldauppsagna hjá HB Granda 10. ágúst 2007 12:12
Ekki kemur til fjöldauppsagna hjá sjávarútvegsfyrirtækinu HB Granda í tengslum við þá ákvörðun stjórnar fyrirtækisins að hætta allri fiskvinnslu í Reykjavík og flytja hana upp á Akranes þar sem nýtt fiskiðjuver verður reist. Forsvarsmenn HB Granda ákváðu að grípa til þessara aðgerða í kjölfar þess að ákveðið var að skera niður þorskafla á næsta fiskveiðiári um 30 prósent. Að sögn Eggerts B. Guðmundssonar, forstjóra HB Granda, mun þorskvóti félagsins dragast svo mjög saman á næsta ári vegna ákvörðunar sjávarútvegsráðherra að bein sókn í þorsk verði ómöguleg. Minnkar kvótinn úr 7800 tonnum í 5200 tonn og verður þorskur því einungis veiddur sem meðafli annara tegunda eins og ýsu, ufsa, karfa og grálúðu. Eina þorskveiðiskip félagsins, ísfisktogarinn Sturlaugur H. Böðvarsson, mun því snúa sér að ufsa- og karfaveiðum. Að sögn Eggerts kemur þessi niðurskurðu á þorskafla mikið við fyrirtækið. „Það að missa 2500 tonn af þorski þýðir að velta upp á fleiri hundruð milljónir tapast. Við verðum því að grípa til aðgerða því spilunum í stokknum okkar fækkar," segir Eggert. Þessi ákvörðun þýðir að þorskvinnsla í landi skreppur verulega saman. Henni hefur hingað til verið sinnt í fiskiðjuveri HB Granda á Akranesi. Að sögn Eggerts verður sá þorskur sem veiðist sem meðafli áfram unninn þar auk þess sem hluti ufsaaflans verður unninn á Akranesi. Hann hefur hingað til allur verið unninn í Reykjavík ásamt karfa. Til þess að haga landvinnslunni á sem hagkvæmastan hátt verður hún öll sameinuð í einu nýju fiskiðjuveri, sem áformað er að reisa á Akranesi. Stjórn HB Granda hefur óskað eftir því við stjórn Faxaflóahafna að gerð nýrrar landfyllingar og hafnargarðs á Akranesi verði flýtt svo félagið geti reist þar fiskvinnsluhús. Það á að vera tilbúið eftir um tvö ár ef allt gengur að óskum að sögn Eggerts. Þetta þýðir jafnframt að fiskvinnsla í Reykjavík á vegum fyrirtækisins leggst af en HB Grandi á eitt stærsta fiskvinnsluhús höfuðborgarsvæðinsins úti á Granda. Aðspurður segir Eggert að ekki komi til fjöldauppsagna vegna þessa en að starfsfólki verði fækkað eitthvað á næstu tveimur árum á meðan breytingarnar standi yfir. Hjá fyrirtækinu starfa samtals 180 manns við fiskvinnslu, 60 á Akranesi og 120 í Reykjavík. Óvíst er hvað verður um fiskiðjuver HB Granda við Grandagarð en Eggert segir að allt komi til greina, jafnvel að selja það.
Mest lesið Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Innlent Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Hleypti líklega óvart úr Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Innlent Fleiri fréttir Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Sjá meira