Mikill meirihluti kvenna fær of litla fólínsýru 9. ágúst 2007 12:19
Líkur á brjóstakrabbameini minnka um nærri helming hjá konum ef þær neyta mikillar fólínsýru eða borða nóg af fólasínríku fæði. Þetta sýnir ný og umfangsmikil rannsókn sænskra vísindamanna. Rannsóknin sýnir að mikill meirihluti kvennanna borðar of lítið af fólasíni. Sænskir miðlar greina frá rannsókninni í dag. Fylgst var með um tólf þúsund konum yfir fimmtugu á tíu ára tímabili og á þeim tíma fengu 400 kvennanna brjóstakrabbamein. Rannsóknin leiddi einnig í ljós að fimmta hver kona neytir nægilega mikið af fólasíni sem samkvæmt lýðheilsuyfirvöldum í Svíþjóð eru 300 míkrógrömm á dag. Það þýðir að 80% kvennanna fengu ekki nóg af fólasíni. Hjá Lýðheilsustöðinni á Íslandi fengust þær upplýsingar að fólasín sé einkum að finna í grænmeti, sumum tegundum ávaxta, hnetum og vítamínbættu morgunkorni. Meðal annars í rauðri papriku, spínati, brokkolí, jarðarberjum, appelsínum og Cheeriosi svo eitthvað sé nefnt. Ráðlagður dagskammtur hér er talinn 300 míkrógrömm á dag, eins og í Svíþjóð, og að mati sænsku vísindamannnanna þarf ekki mikið meir til að draga úr líkum á brjóstakrabbameini. Dagsskammturinn næst til dæmis með um einni og hálfri skál af Cheeriosi. Of stór skammtur þykir þó ekki æskilegur. Ófrískum konum hefur samt verið ráðlegt að borða fólasínríka fæðu, helst um 500 mikrógrömm á dag til að koma í veg fyrir fósturskaða. Það voru sérfræðingar við Háskólann í Lundi sem unnu rannsóknina en niðurstöður hennar er að finna í nýjasta hefti tímaritsins American Journal of Clinical Nutrition. Hins vegar eru ekki allir á eitt sáttir um virkni vítamínsins því aðrar rannsóknir hafa sýnt að það auki hættuna á annars konar krabbameini.
Mest lesið Fimm ríki fordæma ísraelsk stjórnvöld Erlent Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Erlent Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Gestum komið fyrir á öðru hóteli Innlent Fleiri fréttir Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Sjá meira