Mál og menning kaupir Eddu Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 8. ágúst 2007 18:53
Mál og menning hefur keypt útgáfuhluta Eddu af Björgólfi Guðmundssyni. Starfsfólk heldur störfum sínum. Formaður Máls og menningar, Þröstur Ólafsson, segir sameiningu Máls og menningar og Vöku-Helgafells á sínum tíma í einn útgáfurisa hafa mistekist. Edda útgáfa varð til við samruna rótgróinna forlaga, Máls og menningar og Vöku Helgafells og átti hvort félag helmingshlut í fyrirtækinu. Þessi útgáfurisi ætlaði sér mikinn á bókamarkaði og höfuðstöðvunum var fundinn staður á fimm hæðum á Suðurlandsbraut 12. Nýmiðlun átti að vera snar þáttur í framleiðslunni og tónlistarútgáfa að fá aukið vægi. Félagið Mál og menning hefur að undanförnu eingöngu verið eignarhaldsfélag um húsnæði bókabúðarinnar að Laugavegi 18 og 17,5 prósenta hlut í Eddu-útgáfu. En reksturinn gekk treglega og tveimur árum síðar leituðu menn til Björgólfs Guðmundssonar sem setti fé í fyrirtækið og eignaðist smám saman 82 prósenta hlut. Fréttatilkynning barst nú undir kvöld um að búið væri að ganga frá samkomulagi um kaup Máls og menningar á útgáfuhluta Eddu. Það má því segja að gamla bókaútgáfa Máls og menningar verði endurreist - nú með Vöku-Helgafelli innanborðs. Bókaklúbbarnir verða þó áfram í eigu Eddu. Formaður Máls og menningar, Þröstur Ólafsson, vildi í samtali við fréttastofu í dag ekki gefa upp kaupverðið. Aðspurður hvort fjársterkur einstaklingur stæði með félaginu í þessum kaupum sagði Þröstur að svo væri því miður ekki. Kaupin yrðu fjármögnuð með sölu á húsnæðinu við Laugaveg 18 og lánum. Þröstur segir ljóst að sameiningin fyrir sjö árum hafi mistekist. Reksturinn hafi verið í pattstöðu vegna helmingaskipta Vöku og Máls og menningar og þeirra ólíku vinnubragða sem tíðkuðust í fyrirtækjunum. Á meðan blæddi hinu nýja fyrirtæki. Veltan hjá útgáfuhluta Eddu var í fyrra tæplega 1300 milljónir og hefur aldrei verið meiri í bókaútgáfunni sjálfri. Útgáfan ber höfuð og herðar yfir aðra í bransanum, er þrisvar sinnum stærri en næststærsta forlagið. Búist er við að kaupin gangi endanlega í gegn innan mánaðar, vel fyrir jólabókaflóðið.
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira