Missti báða fætur, vantar enn nýra 4. ágúst 2007 19:26
Pólverji sem missti báða fætur og hlaut töluverðan skaða af vegna blóðeitrunar sem hann fékk við störf hér á landi fyrir tveimur árum þarf einnig á nýju nýra að halda eftir slysið. Hann þarf að fara í nýrnavél á Landspítalanum þrisvar í viku en segist þó ekki geta hugsað sér að snúa aftur til Póllands þar sem íslenska heilbrigðiskerfið hlúi mun betur að sjúklingum en í heimalandinu. Irek Gluchowksi kom hingað til lands vorið 2005 til að vinna og hóf störf hjá Jarðvélum. Hann sýktist eftir að hafa þrifið ruslagám við störf og fékk heiftarlega blóðeitrun. Hann lá milli heims og helju á spítala í rúma tvo mánuði og telst heppinn að vera á lífi í dag. Vegna eitrunarinnar þurfti að fjarlægja fætur Ireks fyrir neðan hné. Hann missti alveg heyrn á öðru eyranu og hefur einungis um helmingsheyrn á hinu. Bæði nýrun gáfu sig og hefur hann þurft að fara í nýrnavél þrisvar í viku í rúm tvö ár. Hann er nú nýfluttur í íbúð sem Rauði Krossinn útvegaði honum og fær mánaðarlegar bætur frá félagsþjónustunni. Irek segist þakklátur fyrir alla þá hjálp sem hann hefur fengið hér á landi en líf hans sé engu að síður breytt. Irek segist ekki geta unnið og hefur lítið á milli handanna en lifir góðu lífi hér á landi þegar heilsan leyfir. Hann þarf að fara í nýrnarvél þrisvar í viku og segir það draga úr sér kraftinn. Hann vantar nýra til að koma líkamsstarfseminni í eðlilegt horf. Eftir veikindin vóg Irek einungis 49 kíló en hann hefur nú náð upprunalegri þyngd. Hann fær nýja gervifætur frá Össuri í næstu viku sem passa betur við hans líkamsþyngd. Irek segir félagsþjónustuna og heilbrigðiskerfið í Póllandi vera lélegt og er á þeirri skoðun að hann hefði aldrei fengið sömu aðhlynningu þar eins og á Íslandi.
Mest lesið Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Erlent Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Innlent Faðirinn ákærður fyrir að beita Oscar ofbeldi Erlent Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Innlent Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Erlent „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Innlent Stúdentar klóra sér í kollinum yfir hækkun Loga Innlent „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Innlent Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Innlent Íslendingur fastur í Nepal: „Við erum búin að halda okkur inni allan tímann“ Erlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnin feli sig á bak við mistök þeirrar fyrri Um 100 þúsund lömbum slátrað hjá SS á Selfossi „Ísland á betra skilið“ Biður þingmenn að gæta orða sinna Stefnuræða forsætisráðherra á dagskrá í kvöld Óásættanlegt hversu margir falla fyrir eigin hendi Áhyggjuefni að menn missi stjórn á atburðarásinni Fundu fyrir jarðskjálfta í Hveragerði Kærður fyrir fjársvik fyrir að neita að borga Einbeittur brotavilji og óásættanlegur fjöldi sjálfsvíga Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Samfélagslega mikilvæg innviðafjárfesting að efla íslenska tungu Alþingi efnir til stefnuræðubingós Stúdentar klóra sér í kollinum yfir hækkun Loga Húsbrot á höfuðborgarsvæðinu: Oft sama fólkið sem brýst ítrekað inn í fleiri fjölbýlishús „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Segir gott að brugðist var við með valdi og NATO þurfi að sýna styrk Stilltu til friðar á óformlegum fundi í gær Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Hugsanlega verið að reyna á einingu NATO-ríkja Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Rússneskir drónar í pólskri lofthelgi og „sérstök“ ræða forseta Íslands Tekist á um hvort framlag í séreign sé launagreiðsla Mikill meirihluti óánægður með leigubílamarkaðinn „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Stjórnarandstaðan þurfi ný tæki í hendur eftir darraðardans sumarsins Með töskurnar fullar af marijúana Umboðsmaður afgreiddi 566 mál og skilaði 21 áliti Tuttugu prósent meira fjármagn í utanríkismál á næsta ári Ekki ráðist í bólusetningarátak gegn Covid-19 Sjá meira