Árni Johnsen ítrekað misst stjórn á sér og sýnt dómgreindarskort segir Þjóðhátíðarnefnd Sighvatur Jónsson skrifar 1. ágúst 2007 19:00
Þjóðhátíðarnefnd í Vestmannaeyjum treysti sér ekki til að bera ábyrgð á Árna Johnsen sem kynni á hátíðinni. Nefndin segir það vera vegna þess að hann hafi ítrekað misst stjórn á sér og sýnt dómgreindarskort í þeim störfum. Árni Johnsen segir í viðtali í Þjóðhátíðarblaðinu, sem kom út í dag, að hann sé ósáttur við hvernig staðið var að skiptum á kynni Þjóðhátíðar í fyrra. Hann hafði þá gegnt starfinu í þrjátíu ár. Árni segir það broslegt þegar sér hafi verið tilkynnt það á skyndifundi í Herjólfsdal af Páli Scheving í Þjóðhátíðarnefnd, að tveir af þremur nefndarmönnum vildu að hann hætti sem kynnir hátíðarinnar. Árni segist hafa spurt Pál að því hvort það væri pólitík í þessu. Páll hafi byrst sig ógurlega og sagt að ef Árni talaði svona til hans fengi hann ekkert að vera á Þjóðhátíð. Árni segist hafa fengið þarna svar við spurningu sinni. Í yfirlýsingu sem Þjóðhátíðarnefnd sendi Stöð 2 í dag eru ummæli Árna kölluð leirburður, og sögð vera bæði ósönn og ærumeiðandi. Páll hafi ekki svarað með þeim hætti sem Árni lýsir, hann hafi þess í stað sagt spurninguna ósanngjarna, þar sem Þjóðhátíðarnefnd blandi ekki pólitík við sín störf. Í yfirlýsingunni ítrekar Þjóðhátíðarnefnd ástæðu þess að Árna var gert að hætta sem kynnir. Það hafi verið í kjölfar þess að Árni hafi slegið söngvarann Hreim Heimisson á Brekkusviðinu árið 2005. Nefndin segir að öll vitni að atburðinum hafi verið sammála um að Árni hafi slegið Hreim. Í framhaldi segir í yfirlýsingu Þjóðhátíðarnefndar: „Þessi atburðarás varð til þess að Þjóðhátíðarnefnd tók þá ákvörðun einróma að skipta um kynni. Það skal tekið fram að þetta er ekki í fyrsta og eina skiptið sem Árni missir stjórn á sér á Brekkusviðinu og sýnir af sér dómgreindarskort." Þjóðhátíðarnefnd segir að ummæli Árna í Þjóðhátíðarblaðinu séu aumkunarvert yfirklór, sem nefndin kjósi að skoða sem tæknileg mistök. Í niðurlagi yfirlýsingarinnar segir: „Nefndin treysti sér einfaldlega ekki lengur til að bera ábyrgð á Árna Johnsen sem kynni á Brekkusviðinu. Það er lykilatriði í málinu. Lái okkur hver sem er."
Mest lesið Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira