Ætla að halda Smartkortunum 27. júlí 2007 18:36
Reykjavíkurborg mun ekki hætta þróun og vinnu við uppsetningu Smartkorta hvort sem Strætó dregur sig út úr samstarfinu eður ei. Þar er litið á kortin sem tæki til sóknar í markaðssetningu. Fimm ár eru síðan borgarráð ákvað að innleiða kortin en Smartkortin eru tegund greiðslukorta sem innihalda örgjörva. Hugmyndin var að fastagestir strætó, sundstaða, safna og fleiri fyrirtækja borgarinnar gætu notað kortið til greiðslu aðgangseyris þeim til hægðarauka. Í Fréttablaðinu í morgun segir að Strætó bs hafi keypt smartkortalesara í vagna sína fyrir um 100 milljónir króna en síðan hafi fyrirtækið sem sá um þróun kerfisins orðið gjaldþrota. Haft er eftir Reyni Jónssyni, framkvæmdarstjóra Strætó að gera megi ráð fyrir að aðrar 400 milljónir hafi farið í verkefnið, að hlutur Strætó bs. vegna kerfisins sé orðinn 250 milljónir króna og Kostaður borgarinnar annað eins.Þá segir Reynir að ekkert annað að gera fyrir Strætó en að loka kerfinu ef einkaaðilar taki það ekki yfir. Ómar Einarsson, sviðstjóri Íþrótta og tómstundaráðs Reykjavíkur sagði í samtali við fréttastofu í dag að borgin muni ekki hætta þróun og vinnu við uppsetningu Smartkortanna, hvað sem Strætó bs. muni taka ákvörðun um að gera. Hann sagði ýmis vandamál hafa komið upp við þróun þess en fyrirtækið sem hannar kerfið sé nú í eigu SPRON og hafi aldrei orðið gjaldþrota. Ómar dregur í efa að kostnaður borgarinnar vegna þess sé kominn í 250 milljónir. Ómar sagðist ekki hafa nákvæmar tölur undir höndum að svo stöddu en sagðist vera að taka það saman og myndi upplýsa um kostnað borgarinnar vegna Smartkortanna á mánudag. Hann sagðist vonast til að hægt væri að taka kerfið í gang á næstu misserum en búið sé að fjárfesta í öllum búnaði, það eina sem vanti nú eru kortin sjálf.
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Innlent Fleiri fréttir „Hverra hagsmuna er verið að gæta?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Sjá meira