Fjörtíu ára bindindi lokið 26. júlí 2007 18:30
Fjörtíu ára sögu bindindishreyfingarinnar í Galtalækjarskógi er lokið með sölu landsins til systkyninanna Ingunnar, Karls og Steingríms Wernersbarna. Það eina sem ákveðið er með framtíð landsins er að halda þar áfram skógrækt en ekki er ljóst hvort svæðið verði opið almenningi í framtíðinni. Bindindishreyfingin, IOGT, hefur rekið starfsemina í Galtalækjarskógi frá árinu 1967 eða í 40 ár. Þar hafa verið haldnar útihátíðir bindindismanna undanfarna áratugi, en Einar Hannesson formaður svæðisráðs IOGT segir að undanfarin ár hafi sú mikilvæga tekjulind hreyfingarinnar brugðist, aðallega vegna samkeppni frá bæjarhátíðum ýmis konar sem vaxið hefur fiskur um hrygg undanfarin ár. Bindindishreyfingin hefur smátt og smátt eignast land Galtalækjarskógar, alls 107 hektara, en áður en kom til sölunnar nú, höfðu 23 hektarar verið seldir til Hekluhúsa undir sumarhúsabyggð. Systkinin Ingunn, Karl og Steingrímur kaupa því 84 hektara. Ingunn Wernersdóttir segir þetta tækifæri hafa boðist þeim og þau ákveðið að stökkva á það. Ingunn segir systkinin ekki búin að ákveða hvað verði gert á Galtalækjarlandinu í framtíðinni, annað en öruggt sé að skógrækt haldi þar áfram. Hún vill ekki svara því hvort til greina komi að byggja þar upp sumarhúsalóðir. Söluverðið fæst ekki gefið upp, en samkvæmt heimildum fréttastofunnar er brunabótamat fasteigna á jörðinni um eitt hundrað milljónir króna. Fasteignasali sem þekkir vel til verðs á jörðum sagði fréttastofunni að áætla mætti að verðmæti jarðar eins og Galtalæks væri einhvers staðar á bilinu 250 til 300 milljónir króna, en það ylti mikið á nýtingu landsins, verðmætið gæti jafnvel verið hærra. En til að átta sig á stærð 84 hektara lands er ágætt að bera það saman við þekkt kennileyti eins og hverfi í Reykjavík. Ef Galtalækjarlandið yrði lagt yfir Reykjavík næði það yfir miðborgarhlutann í Kvosinni og allan norðurhluta Vesturbæjarins. Það er því ljóst að verulega má hagnast ef nýjir eigendur hyggjast byggja upp sumarhúsabyggð eða aðra starfsemi á svæðinu, sem ekkert liggur fyrir um.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Fleiri fréttir Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Sjá meira