Ráðherrar ánægðir með árangur í baráttu við sjóræningja 24. júní 2007 17:13 Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra, Finn Karlsen sjávarútvegsráðherra Grænlands og Björn Kalsö sjávarútvegsráðherra Færeyja.
Aðalefni fundar sjávarútvegsráðherra Norður - Atlantshafsins sem lauk á Grænlandi í dag var að ræða aðgerðir gegn ólöglegum og óábyrgum fiskveiðum. Á fundinum lýstu ráðherrarnir sérstakri ánægju með þann árangur sem náðst hefur í baráttunni gegn ólöglegum fiskveiðum í Norður-Atlantshafi síðustu misseri. Það sem af er árinu hefur ekki orðið vart við veiðar sjóræningjaskipa á Reykjaneshrygg en vertíðinni þar lýkur innan skamms. Veiðar þessara skipa hafa verið viðvarandi vandamál undanfarin ár. Áætlað hefur verið að þau hafi veitt a.m.k. 20.000 tonn af úthafskarfa á Reykjaneshrygg á síðasta ári. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra tók þátt í fundinum og auk Íslendinga og Grænlendinga sóttu Færeyingar, Norðmenn, Kanadamenn, Rússar og fulltrúar Evrópusambandsins fundinn. Í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu kemur fram að „Aðgerðir sem gripið hefur verið til á vettvangi svæðabundinna fiskveiðistjórnunarstofnana, NEAFC (Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndin) og NAFO (Norðvestur-Atlantshafs fiskveiðistofnunin), hafa þannig skilað umtalsverðum árangri. Fela þær m.a. í sér að banna skipum sem stundað hafa ólöglegar veiðar að koma til hafnar aðildarríkjanna auk þess sem eftirlit með löndunum hefur verið hert. Staðfest er að sex af þeim skipum sem stunduðu ólöglegar veiðar á Reykjaneshrygg á síðasta ári verða rifin í brotajárn. Níu önnur veiði- og flutningaskip sem hafa átt hlut að máli hafa verið kyrrsett í höfnum aðildarríkja NEAFC." Á fundinum lagði sjávarútvegsráðherra Íslands ríka áherslu á að „til að sporna enn frekar við ólöglegum veiðum og viðskiptum með ólöglegan afla, vinni ríkin sérstaklega að því að skip þeirra fari í einu og öllu eftir settum reglum um veiðar og tilkynningar um afla. Var þetta áréttað með tilliti til veiða í úthafinu sem lúta stjórn svæðisbundinna fiskveiðistjórnunarstofnana líkt og NEAFC og voru ráðherrarnir sammála um mikilvægi þessa," segir í tilkynningunni. Jafnframt voru ráðherrarnir sammála um að mikilsvert væri að skoða hvernig hægt sé að sporna við viðskiptum með afla af ólöglegum uppruna. Í því sambandi sé gagnlegt að skoða ferli viðskiptanna, hvort sem lýtur að veiðunum sjálfum, verslun með aflann eða fjármögnun þessarar ólöglegu starfsemi. Einar K. Guðfinnson lagði sérstaka áherslu á að á vettvangi Fiskimálanefndar FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnunar S.Þ., „verði metin og þróuð viðmið til að leggja dóm á hvernig ríki framfylgja skyldum sínum gagnvart skipum sem sigla undir fána þeirra. Uppfylli fánaríki ekki þessi viðmið verði hugsanlega heimilt að grípa til aðgerða gegn viðkomandi skipum á úthafinu." Fundurinn samþykkti að ríkin beiti sér fyrir að þessi vinna hefjist og bauðst Kanada til að halda slíka ráðstefnu.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Fleiri fréttir Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Sjá meira