Innlent

Breytt bílnúmerakerfi

Bílnúmerakerfið er að taka breytingum um þessar mundir og munu breytingarnar taka gildi í næstu viku. Um það bil 30 þúsund nýjum fastanúmerum hefur verið úthlutað á ári undanfarin ár. Nú er svo komið að tölupotturinn er uppurinn og þar af leiðandi hafa verið gerðar breytingar á númerakerfinu til að stækka pottinn.

Hingað til hafa númerin verið þannig að fyrst koma tveir bókstafir og síðan þrír tölustafir. Með því að bæta bókstöfum við tölustafina í þriðja dálk númersins er hægt að stækka mögulegan númerafjölda upp í rúmar tvær milljónir númera. Hingað til hafa fastnúmer öll verið á forminu "AB 123", en geta nú einnig verið "AB C23". Gert er ráð fyrir því að með þessu breytta fyrirkomulagi sé hægt að gefa út fastanúmer næstu 50 árin.

Þessi breyting á ekki að hafa í för með sér kostnaðarauka fyrir hlutaðeigandi aðila. Það er ekki verið að skipta út því kerfi sem fyrir er heldur aðeins verið að gera lítilvæga breytingu sem stuðlar að auknum fjölda fastanúmera. Hinsvegar þurfa fyrirtæki og stofnanir sem starfs síns vegna þurfa að vinna með skráningu bílnúmera mögulega að gera viðeigandi breytingar á sínum tölvukerfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×