Urrriðafossvirkjun aftur inni hjá Flóahreppi 15. júní 2007 18:49
Sveitarstjórn Flóahrepps ákvað eftir fund með forstjóra Landsvirkjunar í dag að taka Urriðafossvirkjun aftur inn í aðalskipulagstillögu og kynna skipulagið bæði með og án virkjunar. Oddvitinn segir menn vilja heyra betur hvað Landsvirkjun hefur að bjóða.Sveitarstjórn Flóahrepps ályktaði óvænt í fyrradag um að hún hygðist hafna virkjun Urriðafoss. Þetta varð til þess að Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar ásamt Helga Bjarnasyni mætti til fundar við ráðamenn sveitarfélagsins, þau Aðalstein Sveinsson oddvita, Margréti Sigurðardóttur sveitarstjóra, Guðbjörgu Jónsdóttur varaoddvita og Björgvin Njál Ingólfsson hreppsnefndarmann. Niðurstaðan er sú að sveitarstjórnin opnar aftur á virkjunina.Þegar spurt er hvað það var sem Landsvirkjun bauð sem fékk þá til að endurskoða afstöðu sína þá er svarið hvernig ýmiss fórnarkostnaður verði bættur.Ljóst er að Flóamenn horfa yfir árbakkann og bera sig saman við Ásahrepp sem hefur þegar sett virkjunina inn á aðalskipulag. Ásahreppur mun að óbreyttu einn njóta allra fasteignagjalda af Urriðafossvirkjun, 25 til 30 milljóna króna á ári, og þar með mesta ávinningsins.Sveitarstjórn Flóahrepps mun halda íbúafund eftir tíu daga þar sem tillögur að aðalskipulagi verða kynntar með og án Urriðafossvirkjunar. Í framhaldi af þeim fundi hyggst sveitarstjórnin taka ákvörðun um hvort virkjunin verður höfð inni á skipulagstillögunni.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira