Innlent

Fækkar í rjúpnastofninum um fjórðung milli ára

Fækkað hefur í rúpnastofninum um að meðaltali 27 prósent frá síðasta ári samkvæmt niðurstöðum rjúpnatalningar Náttúrufræðistofnunar Ísland. Þetta er annað árið í röð sem rjúpum fækkar en rjúpnaveiðar voru heimilaðar bæði árið 2005 og 2006 með takmörkunum eftir tveggja ára veiðibann.

Í tilkynningu frá Náttúrufræðistofnun kemur fram að á árunum 2003-2004 og 2004-2005, þegar veiðibann var í gildi, óx stofninn um 80-100 prósent á milli ára og átti sá vöxtur sér ekki hliðstæðu á fyrri árum. Stofnunin segir ástand rjúpnastofnsins í vor ekki í samræmi við það sem vænta mátti og að mat á veiðiþoli stofnins liggi fyrir í ágúst í kjölfar mælinga á varpárangri rjúpna nú í sumar.

Rjúpur voru taldar í vor á 41 svæði í öllum landshlutum og sýna frumniðurstöður að fækkun varð á nær öllum svæðum líkt og árið 2006. Aðeins á austanverðu landinu virðist veraum kyrrstöðu að ræða. Að meðaltali nam fækkun rjúpna 27 prósentum samanborið við 12 prósenta fækkun í fyrra.

Náttúrufræðistofnun segir íslenska rjúpnastofninn sveiflast mikið af náttúrulegum orsökum. Síðustu áratugi hafi hins vegar gætt langtímaleitni niður á við í stofninum. Meginástæða fækkunar er að afföll fullorðinna rjúpna hafa aukist jafnt og þétt.

Í ljósi þessarar þróunar lagði Náttúrfræðistofnun til fimm ára veiðibann árið 2003. Í framhaldi af því ákvað umhverfisráðherra að friða rjúpur í þrjú ár eða til haustsins 2006 en sem fyrr segir var friðuninni aflétt haustið 2005 í kjölfar mikillar uppsveiflu í stofninum.

„Hlutfallslegur vöxtur rjúpnastofnsins á friðunarárunum 2003-2005 á sér ekki hliðstæðu á síðari árum og var þess vænst að uppsveifla stofnsins mundi vara í 4-5 ár eins og raunin hefur oftast verið á síðustu áratugum. Nú bregður hins vegar svo við að vöxtur stofnsins stöðvast eftir aðeins tvö ár og niðursveifla er hafin. Miðað við fyrri reynslu má gera ráð fyrir að hún muni vara næstu 4-5 ár," segir í tilkynningu Náttúrufræðistofnunar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×