Innlent

Ekki hægt að neyða þjónustu á fólk

Öldruðu hjónunum sem flutt voru á Landspítala eftir að nágrannar höfðu fundið megna ólykt frá íbúð þeirra heilsast vel. Verið er að hreinsa íbúð þeirra svo þau geti snúið aftur til síns heima. Konan var með sár á fæti sem var alsett lirfum. Ekki hægt að neyða fólk til að þiggja þjónustu frá velferðarsviði segir Ellý Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri.

Hjónin voru lögð inn á öldrunardeild Landspítalans á þriðjudag. Eins og við sögðum frá í fréttum okkar í gærkvöldi voru þau flutt þangað eftir að nágrannar kölluðu eftir aðstoð þar sem megna lykt lagði frá íbúðinni. Konan hefur verið rúmliggjandi árum saman en eiginmaður hennar hefur hugsað um hana.

Þegar hann síðan veiktist sjálfur gátu þau enga björg sér veitt. Verið er að þrífa íbúðina og mála hana en aðkoman var skelfileg og hafði fólkið til að mynda ekki komist á salerni til að gera þarfir sínar. Þá var konan með sár á fótum sem bundið hafði verið um og þegar sárabindin voru fjarlægð kom í ljós að undir þeim grasseruðu flugnalirfur. Samkvæmt heimildum fréttastofu var það þó lán í óláni því þessar lirfur átu dautt skinn og héldu sárinu hreinu.

Ellý Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, sagði í samtali við fréttastofu nú rétt fyrir fréttir að ekki sé hægt að neyða þjónustu upp á fólk en hjónin höfðu verið treg til að þiggja aðstoð frá borginni. Hún sagði að til þess þurfi að liggja fyrir læknisfræðilegt mat á því að fólk sé hættulegt sér og öðrum og þá er hægt að fara fram á að það sé svipt sjálfræði.

Aðspurð hvort fylgst væri með öldruðum í borginni sagði Ellý að til standi að setja á fót reglulegar heimsóknir til aldraðra. Nýlega hafi farið af stað tilraunaverkefni í Laugardals- og Háaleitishverfi þar sem aldraðir væru heimsóttir reglulega og ef það verkefni gefur góða raun stendur til að víkka það út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×