Segja skýrslu um íslenska háskóla rangtúlkaða 14. júní 2007 11:56 Háskóli Íslands. MYND/GVA
Úttekt Ríkisendurskoðunar á íslenskum háskólum er ekki endanlegur mælikvarði á ágæti skólana heldur viðleitni til að opna umræðuna um hvernig megi meta þá. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Ríkisendurskoðun. Stofnunin telur að umræðan í fjölmiðlum um úttektina hafi í sumum tilfellum verið röng og hvetur til þess að menn ræði hana á málefnalegum forsendum. Í yfirlýsingu Ríkisendurskoðunar kemur fram að þó að skýrsla stofnunarinnar fjalli um kostnað og skilvirkni og gæði háskólakennslu fari fjarri því að stofnunin setji jafnaðarmerki milli þessara þátta eða geri einn rétthærri öðrum. Ríkisendurskoðun bendir á að í umræðu um skýrsluna hafi verið fullyrt að brottfall nemenda frá námi sé ekki reiknað inn í heildarmat á skilvirkni námsins. Þetta sé rangt og í skýrslunni sé skilvirkni ávallt metin út frá fjölda brautskráðra nemenda en ekki út frá heildarfjölda innritaðra nemenda. Þá segir ennfremur í yfirlýsingu Ríkisendurskoðunar að hvergi sé það gefið í skyn í skýrslunni að mælikvarði á gæði háskólakennslu fari eftir því hversu ódýrir skólarnir eru. Þvert á móti hafi verið bent á að hár kostnaður geti verið vísbending um hátt þjónustustig við nemendur. Það sé hins vegar hlutverk stofnunarinnar að kanna hvernig því skattfé almennings sem ríkið veitir til einstakra stofnana og verkefna sé notað og hvort það sé gert á hagkvæman, skilvirkan og árangursríkan hátt. Ríkisendurskoðun leggur áherslu á í yfirlýsingunni að úttektin hafi ekki verið endanlegur mælikvarði á ágæti íslenskra háskóla heldur einungis viðleitni til að opna umræðuna um það hvernig megi meta þá. Margir fyrirvarar séu settir fram í skýrslunni um túlkun einstakra atriða. Stofnunin hvetur fólk til að kynna sér skýrsluna og ræða um efni hennar á málefnanlegan hátt.
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Fleiri fréttir Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Sjá meira