Teljur tjón vegna vatnslekans ekki mikið Höskuldur Kári Schram skrifar 13. júní 2007 10:45 Smáratorg í Kópavogi. MYND/VG
Ekki er talið að tjón vegna vatnslekans í Rúmfatalagernum sé mikið. Fjármálastjóri verslunarinnar segir aðalleg um skemmdir á gólfi að ræða en að vörur í versluninni hafi sloppið að mestu. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins vinnur nú í því að dæla vatni úr versluninni og á öðrum svæðum við Smáratorg. Úðarakerfi bilaði eftir að vatn var tekið af Smáratorginu án þess að rekstraraðilar voru látnir vita. „Útlitið er gott miðað við aðstæður og skemmdir minni en við óttuðumst, " sagði Þorsteinn Þorsteinsson, fjármálastjóri Rúmfatalagersins, í samtali við Vísi. „Þetta eru aðallega skemmdir á vörum inni á lager en vörur í versluninni virðast hafa sloppið." Úðarakerfi í lager Rúmfatalagersins við Smáratorg bilaði í nótt með þeim afleiðingum að það fór í gang. Starfsmenn verslunarinnar urðu fyrst varir við lekann þegar þeir mættu til vinnu í morgun. Að sögn Þorsteins var allt vatn tekið af Smáratorginu í nótt vegna framkvæmda við nýbyggingar á svæðinu. Rekstraraðilar í Smáratorginu voru hins vegar ekki látnir vita. Þegar þrýstingur var settur á að nýju er talið að úðarakerfi hafi farið af stað með fyrrgreindum afleiðingum. Þorsteinn segir það mikil mildi að úðarakerfi inni í versluninni sjálfri hafi ekki farið í gang heldur aðeins inni á lagersvæði. Hann segir vörutjón talið í hundruðum þúsunda króna. „Við stefnum að því að opna aftur í dag. Það þarf að hreinsa teppið í versluninni en öðru leyti virðist tjónið vera óverulegt. Hins vegar er ljóst að þeir hefðu átt að láta okkur vita áður en þeir tóku vatnið af." Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins lak vatn yfir 1.000 til 1.500 fermetra gólflöt í verslunar- og þjónusturými við Smáratorgið. Auk Rúmfatalagersins lak vatn einnig inn í húsnæði Læknvaktarinnar og verslun Elko. Slökkviliðsmenn eru enn á svæðinu að dæla vatni.
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Fleiri fréttir Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Sjá meira