Seljist ekki hvalkjötið er veiðum sjálfhætt Jón Örn Guðbjartsson skrifar 12. júní 2007 18:57
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, segir að seljist ekki hvalkjöt sem nú er í frystigeymslum hér á landi sé hvalveiðum sjálfhætt. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, segir að ekki svari kostnaði að veiða þær tvær langreyðar sem eftir eru af kvótanum.Þrátt fyrir að ríkisstjórnin sé ekki einhuga í hvalveiðimálum ætlar sjávarútvegsráðherra ekki af beygja af leið en Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra hefur lýst andstöðu gegn hvalveiðum okkar Íslendinga. Einar K. Guðfinnsson segir að þetta mál verði skoðað á næstunni í ríkisstjórninni og á því finnist án efa farsæl lausn. Hvalveiðimálið fari hins vegar ekki alveg eftir flokksböndum. Þrátt fyrir þá gagnrýni sem komið hafi fram á veiðarnar hafi hann aldrei fengið bakþanka vegna ákvörðunar sinnar um að hefja hvalveiðar. Í dag voru þrír bátar við hrefnuveiðar á vegum Hafró, en þær veiðar eru í vísindaskyni og má veiða 39 dýr. Ekki fengust fréttir af veiðinni. Á þessu fiskveiðiári er veitt leyfi í atvinnuskyni fyrir veiðum á 30 hrefnum og níu langreyðum. Veiðiheimildin nær til 1. september næstkomandi. Samkvæmt tölum frá Hafró eru óveiddar 28 hrefnur og tvær langreyðar. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf, segir að ekki verði ráðist í að gangsetja skip til að ná í þær tvær langreyðar sem eftir eru af kvótanum, það sé allt of kostnaðarsamt. Eftirspurn var eftir hrefnukjöti í fyrra og segir sjávarútvegsráðherra að kjöt hafi selst vel á hérlendis en tafsamt hafi reynst að bjóða afurðirnar erlendis. Ekki fékkst uppgefið í dag hversu mikið er af langeyðakjöti í frystigeymslum hér á landi. Sjávarútvegsráðherra segir það erfiða pólitíska ákvörðun fyrir stjórnvöld að banna atvinnugreinar sem standa undir sér. Seljist kjötið hins vegar ekki, verði veiðunum sjálfhætt.
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Sjá meira