Háskólum mismunað eftir rekstrarformi 9. júní 2007 15:41 Frá brautskráningu kandídata í dag.
Háskólar á Íslandi sitja ekki við sama borð gagnvart stjórnvöldum því þeim er mismunað fjárhagslega eftir rekstrarformi, sagði Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri sem í dag brautskráði vel á fjórða hundrað kandídata. Í ræðu sinni sagði Þorsteinn einkaháskólana njóta mun meira fjárhagslegs frelsis en opinberir háskólar. Slík mismunun væri afar sérstæð og slíkt óréttlæti þekktist vart í nálægum löndum. Þorsteinn sagði enn fremur brýnt að skapa háskólum fjárhagsleg skilyrði til áframhaldandi vaxtar. Auknar fjárveitingar þyrftu að koma frá ríkisvaldinu, atvinnulífinu, alþjóðlegum uppbyggingarsjóðum og að einhverju leyti frá nemendum sjálfum. Hins vegar ættu stjórnvöld ekki að freistast til að innheimta skólagjöld í grunnámi við opinbera háskóla hér á landi.Þorsteinn lýsti Háskólann á Akureyri reiðubúinn til fullrar samvinnu við stjórnvöld um draga úr mismuninni sem byggst hefði upp milli einkaháskóla og opinberra háskóla í landinu.Þorsteinn sagði enn fremur að miklar breytingar hefðu orðið á Akureyrabæ með tilkomu háskólans en í ár eru 20 ár frá stofnun hans. Háskólinn á Akureyri hefði átt stóran þátt í að snúa við þeirri óheillastöðu sem bærinn var í þegar skólinn tók til starfa. Þá hafi atvinnuleysi verið mikið og fólksflótti frá Akureyri. Samfélagshlutverk háskóla verði seint ofmetið, þeim sé ekki eingöngu ætlað að þjóna fræðunum heldur einnig langtímahagsmunum samfélagsins alls.Hann kvað enn fremur nauðsynlegt að öflugir opinberir háskólar væru starfræktir á Íslandi, annars vegar til þess að fullnægja kröfunni um jafnrétti til náms og hins vegar til þess að gegna hinu ríka samfélagshlutverki sem háskólar einir geti gegnt.Alls voru 372 kandídatar brautskráðir í dag frá fjórum deildum skólans en það er langstærsti hópur sem brautskráðst hefur frá skólanum í 20 ára sögu hans. Konur eru yfirgnæfandi meirihluti kandidata að þessu sinni, 299, en karlar eru 73.Flestir kandídatar voru brautskráðir frá Kennaradeild eða 150. Frá Viðskipta- og raunvísindadeild voru brautskráðir 93 kandídatar, 68 frá Heilbrigðisdeild og 61 frá Félagsvísinda- og lagadeild.Um þriðjungur útskriftarhópsins stundaði fjarnám fyrir milligöngu háskólasetra og símenntunarmiðstöðva á 14 stöðum á landinu, flestir frá Hafnarfirði, Árborg, Akranesi, Reykjanesbæ, Vestmannaeyjum og Vopnafirði.
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Sjá meira