Ráðist á Íslending í Malaví 23. maí 2007 22:12
Íslenskur starfsmaður Þróunarstofnunar Íslands var rændur í Malaví í bænum Monkey Bay við Malavívatn. Frá þessu var greint í seinni fréttum Ríkisútvarpsins í kvöld. Allir starfsmenn stofnunarinnar hafa verið fluttir frá svæðinu og skrifstofu stofnunarinnar hefur verið lokað uns öryggi starfsmanna hefur verið tryggt. Fjórir vopnaðir menn réðust inn á heimili mannsins og rændu öllu verðmætu. Þeir skildu hann eftir keflaðan og læstu lífverðir hans inni í útihúsi. Sighvatur Björgvinsson, yfirmaður stofnunarinnar segir ráðist hafi verið að manninum þar sem hann lá sofandi. Hann var látinn tína til allt fémætt í húsinu og síðan var hann bundinn og keflaður. Verðirnir náðu síðar að sleppa úr prísund sinni og komu þeir manninum til hjálpar. Sighvatur segir að maðurinn hafi ekki slasast í árásinni en að hún hafi verið honum mikið áfall og hefur honum verið veitt áfallahjálp. Samkvæmt fréttum RÚV búa fjórir til fimm íslendingar við Malavívatn að jafnaðir. Sighvatur sagði einnig að áður hafi verið brotist inn til fólks á svæðinu, en að aldrei hafi verið ráðist beint á starfsmenn stofnunarinnar.
Mest lesið Eldur í Elliðaárdal Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Fleiri fréttir Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Sjá meira