Framboð á leiguhúsnæði eykst með tilkomu Keilis 25. maí 2007 19:05 MYND/Heiða
Í hálffimmfréttum Kaupþings er greint frá því að útlit sé fyrir að framboð á húsnæði til leigu muni aukast að einhverju marki á suðvesturhorninu með tilkomu Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs. „Alls er um 2.200 íbúðir að ræða sem jafngildir tæplega heils árs framboði á íbúðum á Reykjavíkursvæðinu," segir Kaupþing. Þá segir að fram til þessa hafi námsmenn og erlendir ríkisborgarar verið hvað atkvæðamestir á leigumarkaði. „Þótt nýju leiguíbúðirnar séu eingöngu ætlaðar námsmönnum er því líklegt að áhrifin á leigumarkaðinn verði töluverð. Hinsvegar verða íbúðirnar settar á markaðinn í smáum skrefum til að draga úr áhrifum á íbúðamarkaðinn og er áætlað að leigja út 300 íbúðir á allra næstu misserum." Framkvæmdir við nýtt álver í Helguvík mun að mati Kaupþingsmanna vega upp á móti þessum áhrifum Keilis en þær munu að líkindum leiða til aukinnar eftirspurnar eftir húsnæði á Reykjanesi. Þeir benda á í því samhengi að stóriðjuframkvæmdir á Austfjörðum hafi haft sterk áhrif til hækkunar húsnæðisverðs á undanförnum árum og því sé erfitt að fullyrða um heildaráhrif á íbúða- og leiguverð á Suðurnesjum á komandi misserum. Hálffimmfréttir segja einnig að verðþróun á leigumarkaði að undanförnu gefi til kynna að eftirspurn hafi verið að aukast, einkum ef tekið sé mið af höfuðborgasvæðinu. „Einu gögnin sem til eru um þróun leiguverðs er vísitala greiddrar húsaleigu frá Hagstofunni. Vísitalan gefur þó ekki fullkomna mynd af þróun leiguverðs á markaði þar sem hún er m.a. fengin með samantekt yfir greiðslu húsaleigubóta og annarra opinberra upplýsinga." Í fréttabréfi kaupþings segir að hækkun vísitölunnar á ársgrundvelli hafi verið um 11,5% í apríl síðastliðnum. „Á sama tíma hefur fasteignaverð hækkað um 5,3%." Þessar tölur þykja benda til að að eftirspurn hafi færst af fasteignamarkaði yfir á leigumarkað og þannig hækkað leiguverð. „Þess ber þó að geta að aukin samkeppni á íbúðalánamarkaði, og þar með auðveldara aðgengi að lánsfé, hefur aukið umsvif á fasteignamarkaði á ný og þar með ýtt undir frekari hækkun íbúðaverðs á síðustu mánuðum."
Mest lesið Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Fleiri fréttir Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Sjá meira