Starfsmaður á Kárahnjúkum greinist með berkla Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 25. maí 2007 18:05 MYND/Vilhelm
Portúgölsk kona, starfsmaður á Kárahnjúkum, hefur verið greind með berkla og er í einangrun á Landspítalanum. Vakthafandi læknir á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað staðfesti þetta í samtali við Vísi. Samkvæmt heimildum Vísis kom konan til landsins 4. febrúar síðastliðinn og mun hún hafa greinst fyrir nokkrum dögum síðan. Hún mun hafa verið flutt til Reykjavíkur fyrir tveimur til þremur dögum síðan en upplýsingar um líðan hennar hafa ekki fengist hjá Landspítala Háskólasjúkarahúsi enda um trúnaðarupplýsingar að ræða. Vakthafandi læknir á Neskaupstað, Björn Magnússon segir að konan hafi greinst með berkla, en hann sagðist telja ólíklegt að um smitandi berkla væri að ræða. Hann segir að hún hafi ekki verið mjög veik þegar hún var flutt til Reykjavíkur og hún var ekki með hósta, sem er vísbending um að um smitandi berkla sé að ræða. Það væri þó ekki hægt að slá því föstu og var hún send suður til Reykjavíkur þar sem henni mun vera haldið í einangrun. Björn segir að reglulega hafi verið leitað að berklum á meðal starfsmanna Kárahnjúka en að þetta væri í fyrsta skipti sem sjúkdómurinn finnst á svæðinu.
Mest lesið Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Fleiri fréttir Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Sjá meira