Valgerður gefur kost á sér í varaformannsembættið 25. maí 2007 10:23
Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti varaformanns Framsóknarflokksins á miðstjórnarfundi flokksins sem haldinn verður í næsta mánuði. Þetta tilkynnti hún á blaðamannafundi í höfuðstöðvum flokksins við Hverfisgötu í morgun. Valgerður sagði að útkoman í nýafstöðnum þingkosningum hefði verið flokknum óhagstæð. Það væri þó að baki og flokkurinn horfði nú fram á veginn. Hún hlakkaði til að takast á við aukna ábyrgð í flokknum yrði hún kosin varaformaður. Valgerður er sú eina sem lýst hefur yfir framboði í embættið en það losnaði þegar Jón Sigurðsson sagði af sér sem formaður flokksins á miðvikudag og Guðni Ágústsson tók við af honum. Meðal annarra sem nefndir hafa verið sem arftakar Guðna í varaformannsembætti eru Magnús Stefánsson, fyrrverandi félagsmálaráðherra, og Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs. Björn Ingi lýsti því þó yfir á bloggsíðu sinni á dögunum að hann myndi ekki gefa kost á sér í embættið. „ Ég er enn ungur maður og tekst á við krefjandi og fjölbreytt störf á vettvangi borgarstjórnar Reykjavíkur og kannski mun minn tími koma í þessum efnum síðar," segir Björn Ingi á bloggsíðu sinni.
Mest lesið Eldur í Elliðaárdal Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Fleiri fréttir Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Sjá meira