Ævisaga Laxness færa góðar undirtektir í Noregi 24. maí 2007 20:40 MYND/Úr einkasafni
Ævisaga Halldórs Laxness eftir Halldór Guðmundsson kom út í Noregi í síðustu viku og hefur fengið afbragðsgóða dóma gagnrýnenda. Einn helsti bókmenntagagnrýnandi landsins segir bókina eina bestu ævisögu sem hún hafi lesið. Í tilkynningu frá JPV útgáfu segir að Tiden forlagið hafi gefið bókina út í þýðingu þeirra Silje Beite Løken og Ine Camilla Bjørnsten, „og bauð forlagið höfundinum til Noregs að vera viðstaddur útgáfuna, segir í tilkynningunni. „Af því tilefni efndu forlagið og íslenska sendiráðið til móttöku fyrir rithöfunda, útgefendur og fleira áhugafólk í bústað íslenska sendiherrans á miðvikudagskvöldið. Jostein Gaarder rithöfundur flutti ávarp og fagnaði útgáfu bókarinnar sem ætti eftir að auka áhuga á Halldóri Laxness og verkum hans í Noregi og stuðla að því að menn sæju í honum þann stóra evrópska höfund sem hann var. Síðan sagði Halldór Guðmundsson frá Halldóri Laxness og efnistökum sínum." Þá segir að sama dag hafi fyrsti dómurinn um bókina verið birtur, „en það var hinn virti gagnrýnandi Marta Norheim sem fjallaði um bókina í þættinum Kulturnytt í Norska ríkisútvarpinu. Hóf hún umfjöllun sína á orðunum: „Ævisaga þessi er svo vel hugsuð og vel skrifuð frá fyrstu setningu að maður sogast inn í söguna og óskar þess að hún endist lengi." Þótt hún telji að frásögnin sé stundum of ítarleg yfirgnæfi þó kostir bókarinnar enda sé ævisaga Laxness „ein besta ævisaga sem ég hef lesið." Hún lýkur umfjöllun sinni á orðunum: „Halldór Guðmundsson hefur dregið upp heillandi mynd af listamanni og öldinni." Halldór Laxness - ævisaga var fyrst gefin út hjá JPV útgáfu árið 2004 og hlaut höfundurinn Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðirita og rita almenns efnis. Bókin mun vera væntanleg í Danmörku, Svíþjóð, Þýskalandi og Englandi, auk Noregs.
Mest lesið Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Fleiri fréttir „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Sjá meira