Ríkið sýknað af kröfu ÖBÍ í Hæstarétti 24. maí 2007 16:41
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms í máli Öryrkjabandalags Íslands á hendur íslenska ríkinu vegna lífeyrismála og sýknaði þannig ríkið. Öryrkjabandalagið krafðist viðurkenningar á því að það hefði gert samkomulag við ríkið um að grunnlífeyrir þeirra, sem metnir hefðu verið 75% öryrkjar eða meira 18 ára eða yngri, skyldi tvöfaldast en lífeyrisviðauki þeirra, sem metnir hefðu verið með sömu örorku 19 ára eða eldri, færi lækkandi um 2,04% fyrir hvert aldursár eftir 18 ára aldur til og með 66 ára aldurs, að teknu tilliti til skerðingarákvæða í lögum. Einnig var krafist viðurkenningar á því að Í bæri að greiða sérhverjum öryrkja nánar tilgreindar skaðabætur í samræmi við ofangreinda kröfu. Kröfur Öryrkjabandalagsins voru reistar á því að komist hefði á bindandi samningur þessa efnis milli Jóns Kristjánssonar þáverandi heilbrigðisráðherra og bandalagsins, fyrir kosningarnar 2003 og að ríkið hefði vanefnt samninginn með því að leggja aðeins milljarð til en ekki einn og hálfan milljarð. Í fréttatilkynningu heilbrigðisráðuneytisins, sem dreift var á blaðamannafundi vegna málsins, kom meðal annars fram að gert væri ráð fyrir allt að tvöfaldri hækkun grunnlífeyris þeirra sem yngstir yrðu öryrkjar og að skipaður yrði starfshópur til að gera endanlegar tillögur að breytingum á lögum um almannatryggingar. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að fljótlega eftir kynningu samkomulagsins hefði komið í ljós að forsvarsmenn Öryrkjabandalagsins töldu að samið hefði verið um ákveðna hlutfallslega lækkun grunnörorkulífeyris frá tvöfölduninni, sem miðuð var við 18 ára aldur. Í fyrirliggjandi gögnum, sem lutu að umræddu samkomulagi, hefði hvergi komið fram að bundið hefði verið fastmælum hver hækkun yrði á lífeyri þeirra sem yrðu öryrkjar á aldrinum frá 19 til 67 ára. Ekki hefði heldur verið getið um hver kostnaðurinn væri af þessum breytingum að öðru leyti en því að í fréttatilkynningunni sagði að hann yrði rúmur milljarður króna á ársgrundvelli. Var því ekki talið að Öryrkjabandalagið hefði sannað að sú tilhögun, sem lýst var í fyrri hluta dómkrafna þess, hefði verið þáttur í samkomulaginu og að ekki hefði annað verið leitt í ljós en að koma hafi átt í hlut starfshópsins, sem skipaður var, að móta nánari tillögur í þessum efnum.
Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Sjá meira