Dæmdur fyrir að stinga lögregluna af á mótorhjóli 24. maí 2007 14:27
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann til að greiða 350 þúsund krónur í sekt og svipti hann ökuréttindum í hálft ár fyrir margvísleg umferðarlagabrot bæði á bílum og mótorhjóli. Hann var meðal annars sakfelldur fyrir að stinga lögregluna af á Suðurlandsvegi. Alls voru ákæruliðirnir á hendur manninum tíu talsins og meðal annars ákært fyrir hraðakstur í nokkrum þeirra, reykspólun, fyrir að vera með ógreinilega skráningaplötu á bifhjóli og fyrir að brjóta rúðu á lögreglustöð þegar hann skellti þar hurð. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa ekið á ofsahraða í fyrrasumar á Suðurlandsvegi en þar sinnti hann ekki stöðvunarmerkjum lögreglu í Hveradalabrekku heldur stakk hana af. Ók hann austur að Ingólfshvoli þar sem annar lögreglubíll hugðist stöðva hann en hann sneri þá við og ók í átt að Hveragerði þar sem lögregla hafði lagt tveimur bílum þversum á veginum til að stöðva för hans. Ók hann þá inn vegarkafla að Völlum í Ölfusi og fór með hjólið inn í bílskúr við hús þar og fór sjálfur inn í húsið. Fann lögregla hann þar. Þótti dómnum sannað út frá vitnisburði lögreglumanna að maðurinn hefði gerst sekur um ofsaakstur, eða ekið á yfir 140 kílómetra hraða, og sömuleiðis að hann hefði ekki sinnt stöðvunarmerkjum lögreglu. Maðurinn var hins vegar sýknaður af ákæru um rúðubrot vegna slaks málatilbúnaðar en hann viðurkenndi alls fimm brotanna. Enn fremur var hann sakfelldur fyrir þrjá aðra ákæruliði sem sneru að staðsetningu númeraplötu á bifhjólinu. Maðurinn á að baki langan sakaferil og var tekið tillit til þess við ákvörðun refsingar. Þarf hann að sæta 22 daga fangelsi ef hann geiðir ekki 350 þúsund króna sekt sína.
Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Sjá meira