Mikil aukning umferðarlagabrota 24. maí 2007 11:18 MYND/HÞG
Umferðarlagabrot í umdæmi lögreglunnar á Egilsstöðum og Seyðifirði hafa aukist um 140 prósent á fyrstu fimm mánuðum þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Í síðasta mánuði voru 121 ökumaður tekinn í umdæminu vegna umferðarlagabrots en í sama mánuði í fyrra voru þeir 37 talsins. Aukið eftirlit og markvissari stýring umferðareftirlits skýrir að mestu þessa fjölgun. „Þetta eru samverkandi þættir. Við höfum aukið eftirlit á vegum og gert það markvissara," sagði Óskar Bjartmarz, hjá lögreglunni á Egilsstöðum, í samtali við Vísi. Samkvæmt afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra fyrir síðastliðinn aprílmánuð voru 121 umferðarlagabrot skráð í umdæmi lögreglunnar á Seyðisfirði og Egilsstöðum í síðasta mánuði. Á sama tíma í fyrra voru brotin 37 og því aukist um nærri 300 prósent milli ára. Óskar segir fyrst og fremst um hraðakstursbrot að ræða en segir lögregluna ekki hafa breytt neinum viðmiðunum. „Við höfum ekki breytt neinum viðmiðum. Á fyrstu fimm mánuðum þessa árs voru 140 prósent fleiri hraðakstursbrot skráð hjá okkur miðað við sama tímabil í fyrra." Sama er upp á teningnum hjá lögreglunni á Sauðárkróki en þar voru rúmlega 100 prósent fleiri umferðarlagabrot skráð hjá lögreglunni í apríl miðað við sama mánuð í fyrra. Alls voru 86 ökumenn teknir í umdæminu í apríl en í fyrra voru þeir 39 talsins. Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki skýrist aukning fyrst og fremst af auknu eftirliti. Frá áramótum hefur verið gerður út sérstakur lögregluþjónn frá embættinu sem hefur það eina hlutverk að hafa eftirlit með umferð á þjóðveginum.
Mest lesið „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Innlent Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Sjá meira