Eldur í fjölbýlishúsi í Njarðvík 23. maí 2007 21:48 MYND/Anton Brink
Betur fór en á horfðist í Njarðvík í kvöld þegar eldur kom upp í stigagangi þriggja hæða fjölbýlishúss. Þegar slökkviliðið kom á vettvang kom í ljós að kveikt hafði verið í blaðastafla og gekk greiðlega að slökkva eldinn en töluverður reykur myndaðist í húsinu. Nokkuð víst er að um íkveikju hafi verið að ræða. Varðstjóri hjá Slökkviliði Brunavarna Suðurnesja segir að vel hafi gengið að slökkva eldinn enda hafi hann ekki náð að læsa sig í teppi eða veggi hússins. Það hefði því getað farið illa en fjöldi fólks var í húsinu þegar eldurin blossaði upp. Ekki er vitað hver kveikti í staflanum en lögreglan rannsakar málið. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út, en varðstjórinn segir að þar sé reyndar ekki um marga menn að ræða, sérstaklega ef litið er til þeirrar íbúafjölgunar sem orðið hefur á svæðinu á síðustu árum. „Nú erum við líka komnir með öll húsin á varnarsvæðinu undir okkar hatt og þar skilst manni að háskólaíbúðir verði teknar í notkun nú í haust," segir hann. Enn hafa engin viðbrögð komið við umkvörtunum slökviliðsmannanna á svæðinu. Sem dæmi um stærð slökkviliðsins á svæðinu bendir hann á að í útkallinu í kvöld, sem í fyrstu virtist vera alvarlegt, hafi allt tiltækt lið verið kallað á staðinn. „Það voru við þrír sem erum á vakt, slökkviliðsstjórinn sem er á bakvakt og síðan kölluðum við á þá þrjá sem eiga að vera á morgunvakt í fyrramálið," Það voru því sjö slökkviliðsmenn í það heila sem mættu á staðinn en sem betur fór var ekki um stórbruna að ræða.
Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Fleiri fréttir Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Sjá meira