Strikað yfir fortíðina varðandi deilur um Írak 23. maí 2007 20:21
Þau Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, verðandi utanríkisráðherra mættu í Ísland í dag fyrr í kvöld þar sem farið var um víðan völl. Ingibjörg sagði meðal annars að ákveðið hafi verið að strika yfir fortíðina þegar kæmi að Íraksstríðinu og Geir sagði að kynjakvótar gætu komið í veg fyrir að hæfustu ráðherrarnir væru skipaðir. Ingibjörg sagði í viðtalinu að markmið flokks hennar hefði verið að koma á fót ríkisstjórn Samfylkingar, vinstri gænna og frjálslyndra. Þeir flokkar hefðu allir verið sammála um að taka Ísland af lista hinna vígfúsu þjóða. Í ljósi þess að Samfylkingin fór í stjórn með Sjálfstæðisflokknum hafi verið ákveðið að slá striki yfir fortíðina en hún benti á yfirlýsinguna í sáttmálanum þar sem stríðsreksturinn í Írak er harmaður sem hún sagði mjög mikilvæga. Geir var spurður út í rýran hlut kvenna í ráðuneytum Sjálfstæðisflokksins og svaraði hann því til að margar hæfar konur væru í þingflokki sjálfstæðismanna. „Það koma fleiri sjónarmið til skjalana þegar valið er á milli," sagði Geir og nefndi í því sambandi niðurröðun á lista að loknum prófkjörum. Hann sagði að sinn flokkur væri ekki á því að taka upp kynjakvóta við skipanir ráðherra eins og Samfylkingin hefur gert. „Þau erumeð ákveðna reglu í því efni, en þá er ekki endilega þar með sagt að verið sé að velja hæfasta fólkið," sagði forsætisráðherra og bætti við: „Ég veit og skil að það eru ekki allir sáttir. Það eru sem betur fer í okkar flokki mörg ráðherraefni og við sjáum til hvernig þetta þróast."
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Sjá meira