Tónlist.is hefur staðið við allar skuldbindingar gagnvart Senu 23. maí 2007 17:52 Eiður Arnarsson hjá Senu MYND/Stefán Karlsson
Útgáfufyrirtækið Sena hefur sent frá sér tilkynningu vegna frétta síðustu daga þess efnis að tónlistarveitan Tónlist.is hafi ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart flytjendum, útgefendum og höfundum. Eiður Arnarsson, fosrtöðumaður tónlistardeildar Senu segir í tilkynningunni að Tónlist.is hafi að fullu staðið við allar skuldbindingar gagnvart Senu, og að það hafi fyrirtækið gert frá upphafi. Sena hefur þegið greiðslur fyrir sína hönd, auk þeirra listamanna sem eru á útgáfusamningum hjá Senu, frá Tónlist.is vegna sölu á stökum lögum, sölu áskriftar og vegna sölu hringitóna fyrir farsíma. Þá segir að Sena hafi hins vegar ekki enn gert þessar tekjur upp gagnvart sínum listamönnum. Uppgjör vegna sölu tónlistar á Tónlist.is byggir á stökum lögum sem telja um 15 þúsund lög og því er umgang þess uppgjörs gríðarlegt. „ Vegna þessa og þeirrar staðreyndar að um er að ræða afskaplega lágar fjárhæðir fyrir meginþorra laganna hefur Sena kosið að bíða með þessi uppgjör og láta þau fremur safnast upp í hærri upphæðir til hvers og eins, enda er Senu það heimilt samkvæmt samningum við listamenn að fresta uppgjörum milli tímabila ef tiltekin lágmarkssala næst ekki," segir í tilkynningunni og því bætt við að þessar greiðslur muni að sjálfsögðu skila sér og að vinna við slík uppgjör muni hefjast á næstu vikum. Í framtíðinni munu uppgjör vegna sölu á Tónlist.is verða gerð samhliða hefðbundnum uppgjörum vegna plötusölu. Tilkynningin í heild sinni fer hér á eftir: Af gefnu tilefni vegna umræðna í fjölmiðlum um meintar vanefndir tónlistarveitunnar tonlist.is gagnvart flytjendum, útgefendum og höfundum vill Sena taka eftirfarandi fram: Tonlist.is hefur að fullu staðið við allar skuldbindingar gagnvart Senu samkvæmt samningum þar að lútandi. Frá opnun tonlist.is hefur Sena þegið, fyrir sína hönd og listamanna á útgáfusamningum hjá Senu, greiðslur frá tonlist.is vegna sölu á stökum lögum, sölu áskriftar og vegna sölu hringitóna fyrir farsíma. Vegna gríðarlegs umfangs uppgjara til listamanna vegna sölu á tonlist.is hefur Sena ekki enn gert þessar tekjur upp gagnvart sínum listamönnum. Hefðbundin uppgjör Senu til listamanna byggjast á seldum eintökum geislaplatna og er þar um að ræða um það bil 650 mismunandi titla á ári hverju. Slíku uppgjöri vegna seinni hluta ársins 2006 er nú nýlokið og greiddi Sena íslenskum flytjendum og höfundum um það bil 50 milljónir króna vegna sölu geislaplatna á árinu 2006. Uppgjör vegna sölu tónlistar á tonlist.is byggist hins vegar á stökum lögum og því er umfang þess uppgjörs margfalt meira en hins hefðbundna eða í námunda við 15.000 stök lög. Vegna þessa og þeirrar staðreyndar að um er að ræða afskaplega lágar fjárhæðir fyrir meginþorra laganna hefur Sena kosið að bíða með þessi uppgjör og láta þau fremur safnast upp í hærri upphæðir til hvers og eins, enda er Senu það heimilt samkvæmt samningum við listamenn að fresta uppgjörum milli tímabila ef tiltekin lágmarkssala næst ekki. Þessar greiðslur skila sér þó að sjálfsögðu til flytjenda og vinna við slík uppgjör mun hefjast á næstu vikum. Þau verða í framtíðinni gerð samhliða hefðbundnum uppgjörum en Sena hefur nýverið fjárfest í þóknanahugbúnaði sem gerir öll uppgjör til flytjenda nánast sjálfvirk en þau hafa hingað til verið unnin upp á gamla mátann; "í höndunum". Fh. Senu Eiður Arnarsson Forstöðumaður tónlistardeildar
Mest lesið Eldur í Elliðaárdal Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Fleiri fréttir Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Sjá meira