Innlent

Annasamur dagur hjá Geir og Ingibjörgu

Stjórnarsáttmálinn og ríkisstjórnaraðild verða borin undir fundi flokksráðs Sjálfstæðisflokks og flokksstjórnar Samfylkingarinnar í kvöld og ráðherralistar undir þingflokka. Búist er við að formenn flokkanna kynni hvaða ráðherrar sitja í ríkisstjórninni að loknum fundunum.

Geir H. Haarde áformar að ganga á fund Ólafs Ragnars Grímssonar á Bessastöðum klukkan hálftíu í fyrramálið. Óvíst er þó hvort stjórnarskiptin verði á morgun, þar sem eftir er að ganga frá mörgum formsatriðum, og þykir líklegra að ný ríkisstjórn taki við völdum á ríkisráðsfundi á fimmtudag.

Þegar í morgun sáust fyrstu merki þess að flokkarnir hefðu náð saman um myndun ríkisstjórnar. Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, hóf þá að kalla þingmenn flokksins á sinn fund í Ráðherrabústaðinn til einkasamtals og mættu þeir hver af öðrum með tuttugu mínútna fresti.

Sams konar atburðarás hófst skömmu síðar hjá formanni Samfylkingarinnar og boðaði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þingmenn sína til einkafunda á skrifstofu sinni á Alþingi.

Enn frekari staðfesting á því að flokksformenn teldu stjórnarmyndun í höfn fékkst svo undir hádegi þegar ljóst varð að fundur hafði verið boðaður í þeim stofnunum flokkanna, sem hafa lokaorðið um ríkisstjórnaraðild.

Flokksráð Sjálfstæðisflokksins kom saman í Valhöll nú klukkan sjö og í framhaldi af þeim fundi er búist við að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundi þar sem formaður flokksins kynnir tillögu um ráðherraval. Þingflokkur Samfylkingarinnar hóf að funda á Hótel Sögu klukkan sjö og flokksstjórn Samfylkingarinnar hittist svo klukkan átta.

Formaður Sjálfstæðisflokksins þurfti að kalla 24 þingmenn til sín og stóðu þeir fundir fram undir kvöld. Talið er að á fundunum hafi hann gert þingmönnum grein fyrir stöðu mála og heyrt óskir þeirra og viðhorf til ráðherravals.

Röð þingmannanna virtist vera af handahófi en þó tóku menn eftir því að Guðlaugur Þór Þórðarson, Ásta Möller og Bjarni Benediktsson voru síðustu þingmennirnir sem Geir kallaði fyrir sig áður en röðin kom að sitjandi ráðherrum flokksins.

Á fimmta tímanum fóru svo ráðherrar flokksins að streyma á fund formannsins, þó með einni undantekningu. Fundurinn með Birni Bjarnasyni var snemma í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×