Öflug, frjálslynd umbótastjórn 22. maí 2007 18:30
Væntanleg ríkisstjórn verður öflug og frjálslynd umbótastjórn að sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur formanns Samfylkingarinnar. Jafn margar konur og karlar munu skipa ráðherraembætti flokksins. Þingmenn Samfylkingarinnar gengu hver á eftir öðrum á fund formanns flokksins á skrifstofu hennar á Alþingi í dag. Þar gerði hún þeim grein fyrir stefnuyfirlýsingu væntanlegrar ríkisstjórnar en sagði þeim ekki hverjir verða ráðherrar flokksins. Eini þingmaður Samfylkingarinnar fyrir utan Ingibjörgu Sólrúnu sjálfa sem er öruggur um ráðherraembætti er Össur Skarphéðinsson fyrrverandi formaður flokksins. Ljóst er að margir eru kallaðir en fáir útvaldir og nú reynir á hvort friður verði um val formannsins eða hvort það skapi óánægju til framtíðar. Ingibjörg Sólrún hefur aldrei áður stýrt stjórnarmyndun fyrir hönd flokksins. Hún sagðist því þurfa að spila þetta dálítið eftir eyranu en með viðtölum sínum við þingmenn vildi hún m.a. heyra hugmyndir þeirra um ráðherraefni. Ingibjörg segir að jafnræði verði milli kynjanna í ráðherraliði flokksins. Það þýðir að fimm konur keppa um þau tvö ráðherrasæti sem falla öðrum konum en henni í hönd, ef verðandi stjórnarflokkar skipa sex ráðherrasæti hvor eins og fráfarandi stjórn gerði. Þingmenn sem gengu á fund Ingibjargar í dag voru varkárir í yfirlýsingum. Formaður Samfylkingarinnar sagðiað ný stjórn hefði stóran meirihluta á Alþigi og stjórnin yrði öflug, frjálslynd umbótastjórn.
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Sjá meira