Innlent

Snjókoma og hálka kom ökumönnum í opna skjöldu

Snjókoma og hálka suðvestanlands í nótt kom ökumönnum í opna skjöldu og munaði minnstu að alvarleg slys hlytust af.

Fjórir bílar fóru út af Reykjanesbraut á milli Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar síðla nætur eftir að ökumenn þeirra misstu stjón á þeim í krapa og hálku. Nokkrir úr bílunum voru fluttir á slysadeild en enginn reyndist alvarlega slasaður. Bílarnir voru allir komnir á sumardekk. Þá var mikil hálka og þoka á Hellisheiði undir morgun en ekki urðu óhöpp eða slys þar.

Það gekk á með éljum víða suðvestanlands síðla nætur þannig að fjöll gránuðu og krapi settist sumstaðar á bíla niður í byggð. Árrisulir ökumenn þurftu að grípa til sköfunnar sem í mörgum tilvikum var komin aftur í skott eftir veturinn.

Snjófjúk gerði af og til á höfuðborgarsvæðinu fam eftir morgni en snjórinn bráðnaði jafn harðan eftir að sólar fór að gæta. Þá var einnig hálka á Fróðárheiði og á norðanverðu Snæfellsnesi, sömuleiðis á fjallvegum á Vestfjörðum og þurfti að auki að ryðja þar snjó af Hrafnseyrar- og Dynjandisheiðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×