Baráttusamtökin íhuga að kæra ákvarðanir yfirkjörstjórna 28. apríl 2007 18:53
Forsvarsmenn Baráttusamtaka eldri borgara og öryrkja íhuga að kæra ákvörðun þriggja yfirkjörstjórna að hafna framboðslistum flokksins fyrir komandi kosningar. Fordæmi er fyrir því að dómstóll hafi snúið við slíkri ákvörðun yfirkjörstjórnar. Framboðsfrestur vegna þingkosninganna tólfta maí rann út á hádegi í gær. Alls skiluðu sex framboð inn listum á landsvísu. Yfirkjörstjórnir hafa samþykkt öll framboðin. Baráttusamtök eldri borgara og öryrkja náðu aðeins að skila inn framboði í Norðausturkjördæmi, áður en fresturinn rann út. Það framboð hefur verið úrskurðað gilt. Aðeins var tekið á móti framboðum í tvo tíma eða frá tíu í gærmorgun til hádegis. Baráttusamtökin höfðu tilbúna lista í öllum kjördæmum en náðu ekki að skila þeim öllum inn. Samtökin skiluðu hins vegar inn framboðum eftir að fresturinn rann út í báðum Reykjavíkurkjördæmunum. Yfirkjörstjórnir þar ákváðu að hafna framboðunum þar sem þau bárust of seint. Baráttusamtökin reyndu einnig að skila inn framboði í Suðurkjördæmi en þar neitaði yfirkjörstjórn að taka á móti framboðinu. Baráttusamtökin eru ósátt við þessa afgreiðslu og íhuga nú að kæra niðurstöðurnar til landskjörstjórnar. Arndís Björnsdóttir, talsmaður samtakanna, sagði í viðtali við fréttastofu Stöðvar 2 í gær að tölvuvandræði og veikindi hefðu valdið því að ekki hefði náðst að skila framboðunum. Hún sagðist vonast til að sérstökum aðstæðum yrði sýndur skilningur. Héraðsdómur Norðurlands vestra felldi vorið 2002 úr gildi úrskurð yfirkjörstjórnar Blönduósbæjar og Engihlíðarhrepps um að taka lista bæjarmálafélagsins Hnjúka ekki gildan í sveitastjórnarkosningum. Listinn barst ellefu mínútum of seint. Dómurinn taldi hagsmuni kjósenda skipta meira máli en tímafrestinn og lagði til að yfirkjörstjórn tæki listann til skoðunar. Baráttusamtökin hafa sólarhrings frest til að kæra niðurstöður yfirstjórnanna frá því þeim voru birtar þær. Sem þýðir að frestirnir til þess að kæra renna út frá hádegi til klukkan þrjú á morgun.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira