Innlent

Marijúana í austurborginni

MYND/Páll Bergmann

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haldlagði 120 grömm af ætluðu marijúana í fyrirtæki í austurborginni í gær, að því er kemur fram í tilkynningu. Á sama stað fannst lítilræði af ætluðu amfetamíni í neysluskömmtum.

Karlmaður um fertugt, sem hefur áður komið við sögu hjá lögreglu, var handtekinn vegna málsins sem telst að mestu upplýst.

Á öðrum stað í austurborginni fundust ætluð fíkniefni í vistaverum karlmanns á líkum aldri og í íbúð í miðborginni fundust sömuleiðis ætluð fíkniefni. Í seinna málinu er karlmaður á þrítugsaldri grunaður um fíkniefnamisferli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×