Ekki vitað hvort hringormar spilli hrygningu 10. september 2007 12:30
Hringormar, sem kenndir er við hvali, herja nú á laxastofnana hér við land sem aldrei fyrr. Ekki er enn vitað hvort þeir kunni að spilla hrygningu laxa. Töluvert hefur borið á bólginni og jafnvel blæðandi gotrauf af völdum ormsins á nýgengnum laxi í ám í sumar nánast í kringum allt landið. Þetta kemur fram á vef Landbúnaðarstofnunar og að sömu einkenni hafi sést á laxi í að minnsta kosti einni á í fyrra. Tíðni einkenna hefur rokið upp í sumar, farið upp í annan til þriðja hvern lax í sumum ám, að sögn veiðimanna, og útbreiðslan að sama skapi aukist margfalt. Rannsóknadeild fisksjúkdóma að Keldum hefur útilokað að um bakteríusýkingu sé að ræða eins og kýlaveikibakteríuna sem herjaði á lax í Elliðaánum fyrir tólf árum. Hins vegar er hér um að ræða svokallaðan hvalaorm, en hvalir leika lykilhlutverk í útbreiðslu þeirra líkt og selir í útbreiðslu hringormsins í þorski og fleiri fiskum. Hvalaormurinn heldur sig aðallega við gotrauf laxins eða í innyflum en talið er að hann geti borist út í sjálft fiskholdið ef ormafjöldi verður mikill í hverjum fiski. Fréttir berast nú af sömu einkennum í villtum göngulaxi í ám á Englandi, í Wales og Skotlandi
Mest lesið Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Fleiri fréttir Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Sjá meira