Norska fjármálaeftirlitið grunar að Kaupþing hafi brotið lög Sighvatur Jónsson skrifar 3. ágúst 2007 19:00
Norska fjármálaeftirlitið grunar að lög hafi verið brotin með kaupum Exista á hlutum í norska tryggingafélaginu Storebrand. Eignartengsl Exista við Kaupþing verða skoðuð í þessu sambandi. Eftir kaup fjármálafyrirtækisins Exista í Storebrand, er hlutur þess kominn yfir 5 prósent. Exista á fjórðung í Kaupþingi, svo sameiginlegur hlutur félaganna í norska tryggingafélaginu er þá rúmlega 25 prósent. Það er 5 prósentum meira en Kaupþing má eiga, samkvæmt undanþágu frá norskri reglu um 10 prósenta hámarkseign. Á forsíðu danska blaðsins Dagens Næringsliv í dag er mynd af íslensku bræðrunum Lýði og Ágústi Guðmundssyni. Blaðið hefur eftir Ole Jörgen Karlsen, hjá norska fjármálaeftirlitinu, að tilraun Íslendinga til yfirtöku norska tryggingafélagsins verði rannsökuð. Hann útilokar ekki að haft verði samband við íslenska fjármálaeftirlitið vegna málsins. Svipuð frétt birtist á vef bandaríska blaðsins Forbes í morgun. Þar er haft eftir sama manni frá norska fjármálaeftirlitinu, að ekki hafi verið ákveðið hvort málið verði formlega tekið fyrir hjá eftirlitinu. Hafi verið samvinna hjá félögunum sé það brot á lögum. Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, segir félögin ekki vinna saman og að reglum sé fylgt. Kaup Exista hafi ekki verið gerð í samvinnu við Kaupþing. Hjá Fjármálaeftirlitinu fæst þær upplýsingar að regluleg samskipti séu við fjármálaeftirlit á hinum Norðurlöndunum, en að stofnunin tjái sig ekki um einstök mál.
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fleiri fréttir Afnema fyrirhuguð byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ Sjá meira