Norska fjármálaeftirltið athugar að skoða eignarhlut Kaupþings i Storebrand Sighvatur Jónsson skrifar 3. ágúst 2007 12:06
Norska fjármálaeftirlitið athugar að skoða hvort Kaupþing ráði yfir meiru í norska tryggingafyrirtækinu Storebrand, en félagið hefur heimild fyrir. Hafi kaup fjármálafyrirtækisins Exista á bréfum norska félagsins verið gerð í samvinnu við Kaupþing er það brot á lögum. Stjórnarformaður Kaupþings segir svo ekki vera. Erlenda fréttaþjónustan AFX News Limited greinir frá þessu í grein í morgun, sem birtist meðal annars á fréttavef bandaríska blaðsins Forbes. Sækja þarf um sérstaka heimild til að kaupa meira en 10 prósent í norskum félögum. Kaupþing sótti á sínum tíma um heimild fyrir 25 prósenta hlut, en fékk leyfi til að kaupa 20 prósent í norska tryggingafélaginu Storebrand. Eftir kaup fjármálafyrirtækisins Exista í Storebrand, er hlutur þess kominn yfir 5 prósent. Þar sem Exista á um fjórðung í Kaupþingi, vekur það áhuga norska fjármálaeftirlitsins hvort Kaupþing ráði þannig yfir meiru en þeim 20 prósentum sem félagið má eiga í Storebrand. Haft er eftir talsmanni norska fjármálaeftirlitsins að þar á bæ sé menn meðvitaðir um tengsl Exista og Kaupþings. Hann segir að á þessu stigi málsins hafi ekki verið ákveðið hvort málið verði skoðað hjá norska fjármálaeftirlitinu, en vissulega væri áhugavert að spyrja hvort samvinna hafi verið um kaupin. Hafi svo verið sé það brot á lögum. Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, segir ekkert óeðlilegt að norska fjármálaeftirlitið skoði málið. Hann segir félögin ekki vinna saman og að reglum sé fylgt. Kaup Exista hafi ekki verið gerð í samvinnu við Kaupþing.
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Innlent Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Innlent Fleiri fréttir Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Sjá meira