Kæru Landverndar vegna vatnslagnar í Heiðmörk vísað frá Björn Gíslason skrifar 20. ágúst 2007 14:02 MYND/Daníel R.
Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála hefur vísað frá kæru Landverndar í tengslum við útgáfu framkvæmdaleyfa vegna framkvæmda við vatnslögn um Heiðmörk. Kærunni er vísað frá á þeim grundvelli að Landvernd eigi ekki lögvarinna hagsmuna að gæta í málinu. Landvernd kærði málið fyrr á árinu í tengslum við deilur um lagningu vatnslagnarinnar sem felur í sér mikið jarðrask. Fóru samtökin fram á það að framkvæmdaleyfi sem Kópavogur, Reykjavík og Garðabær gáfu út vegna vatnslagnarinnar yrðu felld úr gildi, meðal annars á þeim grundvelli að framkvæmdin væri háð breytingu á aðalskipulagi sem ekki hefði enn verið gerð. Þá var jafnframt vísað til skógræktarlaga, laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og lög um náttúruvernd.Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála komst hins vegar að því að hvergi í lögum væri að finna heimild fyrir því að samtök eins og Landvernd ættu aðild að kærumálum á sviði skipulags- og byggingarmála án þess að eiga jafnframt þá einstaklegu og lögvörðu hagsmuni sem að stjórnsýslurétti eru taldir skilyrði aðildar að kæru til æðra stjórnvalds. Hefðu samtökin ekki sýnt fram á að þau ættu neinna hagsmuna að gæta sem verið gætu grundvöllur aðildar málinu samkvæmt almennum reglum stjórnsýsluréttarins.Úrskurðarnefndin vísaði sams konar kærur frá Náttúruverndarsamtökum Íslands frá fyrr á árinu með sömu rökum.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Fleiri fréttir Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Sjá meira